is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Heilbrigðisvísindasvið > B.S. verkefni - Heilbrigðisvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/5459

Titill: 
  • Meðferðir sem stytta líf: Viðhorf og hlutverk hjúkrunarfræðinga
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Mikil umræða hefur verið út í heimi um lögmæti meðferða sem stytta líf en fáar
    rannsóknir liggja fyrir um viðhorf og hlutverk hjúkrunarfræðinga í slíkum meðferðum.
    Tilgangur hins fræðilega yfirlits er að varpa ljósi á stöðu þekkingar sem snýr að meðferðum
    sem fela í sér styttingu lífs, sem og tengja málefnið viðfangsefnum og ábyrgð
    hjúkrunarfræðinga. Upplýsingar voru að mestu fengnar úr niðurstöðum nýlegra
    rannsókna, lögum, tímaritum, fræðilegum samantektum og munnlegum heimildum.
    Niðurstöður yfirlitsins benda til þess að meirihluti hjúkrunarsamtaka er mótfallin
    meðferðum sem stytta líf á meðan niðurstöður rannsókna á viðhorfum hjúkrunarfræðinga
    benda flestar til þess að meira en helmingur þeirra sé hlynntur þeim. Niðurstöðurnar
    benda einnig til þess að hjúkrunarfræðingar sinni í sumum tilfellum verkum, sem samkvæmt
    lögum einungis læknar eiga að framkvæma. Þessar niðurstöður eru mikilvægar til
    að varpa ljósi á ósamræmi varðandi málefnið í hjúkrunarstéttinni, einnig vekja þær upp
    spurningar um hvort hjúkrunarfræðingar eigi ekki að taka meiri þátt í ákvörðun um meðferðir
    sem stytta líf.

Samþykkt: 
  • 28.5.2010
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/5459


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Meðferðir sem stytta líf - viðhorf og hlutverk hjúkrunarfræðinga.pdf298.63 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna