Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/5460
Tilgangur og markmið þessa lokaverkefnis til embættisprófs í ljósmóðurfræði var að skoða kosti ljósmæðrastýrðar þjónustu út frá efnahags- og faglegu sjónarmiði. Einnig að þróa viðskiptaáætlun fyrir sjálfstætt starfandi ljósmæðrasetur sem staðsett yrði utan sjúkrahúss en lokaverkefnið er byggt á þeirri viðskiptaáætlun.
Niðurstöður sýndu að það er fjárhagslega hagkvæmt að reka ljósmæðrastýrða einingu utan sjúkrahúss sem sinnir konum í eðlilegri meðgöngu, fæðingu og sængurlegu, miðað við að tilskilinn fjöldi kvenna þiggi þjónustuna. Kostnaður við eðlilegar fæðingar er hvað hæstur á hátæknisjúkrahúsi en flestar fæðingar á Íslandi fara fram þar, enda ekki margir kostir í boði.
Með því að fækka ónauðsynlegum inngripum í eðlilegt fæðingarferli fæst aukinn ávinningur fyrir konuna, fjölskyldu hennar og þjóðfélagið allt. Það má því líta á það sem tækifæri, nú á tímum sparnaðar og niðurskurðar í heilbrigðisþjónustunni, að bjóða upp á samfellda ljósmæðrastýrða þjónustu utan sjúkrahúsa. Konur ættu að hafa val um hvar þær fæða börn sín og val um að nýta slíka barneignarþjónustu.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Ljósmæðrasetur, hagkvæm barneignarþjónusta í höndum ljósmæðra.pdf | 587.83 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |