is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Heilbrigðisvísindasvið > B.S. verkefni - Heilbrigðisvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/5463

Titill: 
  • Þátttaka í barnabólusetningum: hlutverk og ábyrgð hjúkrunarfræðinga. Fræðilegt yfirlit
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Umræðan um öryggi bóluefna hefur aukist verulega síðastliðin ár og þátttaka í
    ungbarnabólusetningum víða á mörkum þess að vera fullnægjandi, bæði hér heima og erlendis. Tilgangur þessa fræðilega yfirlits var að koma auga á þætti er móta viðhorf foreldra til barnabólusetninga og skoða hlutverk og ábyrgð hjúkrunarfræðinga í samskiptum við foreldra. Gagna var aflað úr rannsóknargreinum og opinberum stofnanaskýrslum. Rannsóknir á viðhorfum foreldra til bólusetninga gefa til kynna áhyggjur af öryggi bóluefna, tortryggni í garð heilbrigðisstarfsfólks og lítinn skilning á ávinningi og áhættu bólusetninga. Mikilvægt er að leiðrétta ranghugmyndir almennings hvað varðar öryggi bóluefna ef tryggja á fullnægjandi þátttöku í bólusetningum og koma þannig í veg fyrir faraldra.
    Hjúkrunarfræðingar gegna mikilvægu hlutverki sem málsvarar bólusetninga innan heilsugæslunnar. Ein af frumskyldum hjúkrunarfræðinga er að stuðla að upplýstri ákvarðanatöku og oft á þeirra ábyrgð að fræða foreldra um ávinning og áhættu bólusetninga. Niðurstöður benda til þess að styrkja þurfi þennan þátt heilsugæsluhjúkrunar ef viðhalda á hárri bólusetningaþekjun í framtíðinni. Hjúkrunarfræðingar hafa tækifæri til að efla heilsulæsi foreldra í tengslum við bólusetningar og efla þannig heilbrigði.

Samþykkt: 
  • 31.5.2010
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/5463


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
anna.lokaverkefni.pdf502.19 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna