Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/548
Hver er ég? : birtingarmynd samkynhneigðar í námsbókum á yngsta stigi grunnskóla
Viðfangsefni þessa verkefnis er tvíþætt. Í fyrsta lagi er fjallað um samfélagslega stöðu samkynhneigðra fyrr og nú, saga þeirra og barátta fyrir jafnrétti í vestrænum heimi, erlendis og hérlendis rakin. Að lokum er gerð grein fyrir þeim breytingum sem orðið hafa á lagalegum mismun gagnkynhneigðra og samkynhneigðra. Ennfremur er fjallað um væntanlegar breytingar á íslenskum lögum um réttarstöðu samkynhneigðra. Í öðru lagi eru námsbækur í samfélagsfræði á yngsta stigi grunnskóla innihaldsgreindar með tilliti til birtingarmyndar samkynhneigðar.
Alls voru 13 bækur athugaðar. Athugunin beindist að því hvort og þá á hvern hátt fjallað væri um samkynhneigð og ólíkar fjölskyldugerðir í námsbókunum. Leitað var eftir umfjöllun um samkynhneigð eða ólíkar fjölskyldugerðir í texta bókanna og einnig voru myndir skoðaðar með tilliti til þess hvort hægt væri að sjá samkynhneigð pör eða ólíkar fjölskyldugerðir á þeim. Við greiningu á texta og myndum var stuðst við spurningar sem útbúnar höfðu verið.
Í ljós kom að hvergi er fjallað um samkynhneigð eða ólíkar fjölskyldugerðir í þessum námsbókum og þær gefa sjaldnast tilefni fyrir kennara til að taka upp umræðu um þau málefni. Í öllu tilliti er gengið út frá gagnkynhneigð. Þar sem þögn ríkir í námsbókum geta samkynhneigðir og börn samkynhneigðra ekki samsamað sig aðstæðum. Það er því niðurstaða okkar að mikilvægt sé að opna umræðuna og fjalla um samkynhneigð á jákvæðan og fordómalausan hátt.
Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri
Nafn![]() | Stærð![]() | Aðgangur![]() | Lýsing![]() | Skráartegund | |
|---|---|---|---|---|---|
| hverereg.pdf | 517KB | Takmarkaður | Hver er ég? - heild | ||
| hverereg_e.pdf | 107KB | Opinn | Hver er ég? - efnisyfirlit | Skoða/Opna | |
| hverereg_h.pdf | 134KB | Opinn | Hver er ég? - heimildaskrá | Skoða/Opna | |
| hverereg_u.pdf | 57,9KB | Opinn | Hver er ég? - útdráttur | Skoða/Opna |