is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Akureyri > Hug- og félagsvísindasvið > B.A./B.Ed. verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/548

Titill: 
  • Hver er ég? : birtingarmynd samkynhneigðar í námsbókum á yngsta stigi grunnskóla
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Viðfangsefni þessa verkefnis er tvíþætt. Í fyrsta lagi er fjallað um samfélagslega stöðu samkynhneigðra fyrr og nú, saga þeirra og barátta fyrir jafnrétti í vestrænum heimi, erlendis og hérlendis rakin. Að lokum er gerð grein fyrir þeim breytingum sem orðið hafa á lagalegum mismun gagnkynhneigðra og samkynhneigðra. Ennfremur er fjallað um væntanlegar breytingar á íslenskum lögum um réttarstöðu samkynhneigðra. Í öðru lagi eru námsbækur í samfélagsfræði á yngsta stigi grunnskóla innihaldsgreindar með tilliti til birtingarmyndar samkynhneigðar.
    Alls voru 13 bækur athugaðar. Athugunin beindist að því hvort og þá á hvern hátt fjallað væri um samkynhneigð og ólíkar fjölskyldugerðir í námsbókunum. Leitað var eftir umfjöllun um samkynhneigð eða ólíkar fjölskyldugerðir í texta bókanna og einnig voru myndir skoðaðar með tilliti til þess hvort hægt væri að sjá samkynhneigð pör eða ólíkar fjölskyldugerðir á þeim. Við greiningu á texta og myndum var stuðst við spurningar sem útbúnar höfðu verið.
    Í ljós kom að hvergi er fjallað um samkynhneigð eða ólíkar fjölskyldugerðir í þessum námsbókum og þær gefa sjaldnast tilefni fyrir kennara til að taka upp umræðu um þau málefni. Í öllu tilliti er gengið út frá gagnkynhneigð. Þar sem þögn ríkir í námsbókum geta samkynhneigðir og börn samkynhneigðra ekki samsamað sig aðstæðum. Það er því niðurstaða okkar að mikilvægt sé að opna umræðuna og fjalla um samkynhneigð á jákvæðan og fordómalausan hátt.

Athugasemdir: 
  • Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri
Samþykkt: 
  • 1.1.2006
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/548


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
hverereg.pdf505.75 kBTakmarkaðurHver er ég? - heildPDF
hverereg_e.pdf105 kBOpinnHver er ég? - efnisyfirlitPDFSkoða/Opna
hverereg_u.pdf56.57 kBOpinnHver er ég? - útdrátturPDFSkoða/Opna
hverereg_h.pdf131.25 kBOpinnHver er ég? - heimildaskráPDFSkoða/Opna