is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Verkfræði- og náttúruvísindasvið > B.S. verkefni - Verkfræði- og náttúruvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/5499

Titill: 
  • Heilsutengd ferðamennska. Vellíðun á Íslandi
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Heilsutengd ferðamennska er nýlegt hugtak þó segja megi að slík ferðamennska hafi verið stunduð með óbeinum hætti frá örófi alda. Skiptar skoðanir eru á því hvernig eigi að skilgreina hugtakið og felst ágreiningurinn aðallega í því hversu víð eða
    þröng skilgreiningin eigi að vera. Markmið þessarar rannsóknar er að kanna hvað felst í heilsutengdri ferðamennsku, þ.e. mismunandi skilgreiningar á henni og hvernig hún er á Íslandi í dag ásamt því að kanna framtíðaráform henni tengdri hér á landi. Til að meta þetta voru viðtöl tekin við 8 viðmælendur sem á einn eða annan
    hátt koma að heilsutengdri ferðamennsku á Íslandi.
    Helstu niðurstöður þessarar rannsóknar gefa til kynna að mismunandi skoðanir eru á því hvernig skilgreina megi heilsutengda ferðamennsku og virðist sitt sýnast hverjum í þeim málum. Heilsutengd ferðamennska virðist vera á byrjunarreit vaxtar samkvæmt Líftímakúrfu vöru en framtíðaráform hennar eru björt og er vonin sú að
    hún verði ein af meginstoðum í ferðamennsku á Íslandi.

Samþykkt: 
  • 2.6.2010
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/5499


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Ritgerð loka.pdf544.39 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna