is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Akureyri > Hug- og félagsvísindasvið > B.A./B.Ed. verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/549

Titill: 
  • Betur má ef duga skal : umhverfismennt í grunnskólum
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Eftirfarandi ritgerð er unnin sem lokaverkefni til B.Ed.-prófs við kennaradeild Háskólans á Akureyri á vormisseri 2006. Viðfangsefni ritgerðarinnar er umhverfismennt og hvernig unnið er með hana í grunnskólum landsins. Ritgerðin skiptist í fimm meginkafla.
    Fyrsti kafli fjallar um umhverfismennt, þróun hennar á Íslandi og samstarf um umhverfismál við önnur lönd í heiminum. Teknar eru fyrir breytingar í umhverfismennt í Aðalnámskrám grunnskóla árin 1989 og 1999 og hvert hlutverk siðfræði í umhverfismennt er. Í lok kaflans eru útlistaðar námskenningar og kennsluaðferðir sem kennarar geta stuðst við í kennslu í umhverfismennt.
    Viðfangsefni annars kafla er umhverfisvitund og er henni þar gerð ítarleg skil. Því næst er fjallað um mikilvægi umhverfisfræðslu og náttúrutúlkunar í átt að bættri umhverfisvitund. Að lokum eru settar fram hugmyndir höfunda um leiðir til að efla umhverfisvitund nemenda.
    Í þriðja kafla ritgerðarinnar er umfjöllun um Grænfánaverkefnið sem er alþjóðlegt verkefni á vegum samtakanna Foundation for Environmental Education (FEE). Verkefninu er ætlað að auka umhverfismennt og umhverfisstefnu í skólum og er skólum veittur fáni sem nefnist Grænfáni í viðurkenningarskyni fyrir að uppfylla skilyrði verkefnisins.
    Fjórði kafli er samanburður á tveimur grunnskólum í Eyjafirði sem taka þátt í Grænfánaverkefninu. Annar skólinn er Grunnskólinn í Hrísey sem hlotið hefur Grænfánann en hinn er Síðuskóli á Akureyri sem vinnur að því að fá fánann.
    Í fimmta og síðasta kafla ritgerðarinnar er að finna hugmyndabanka höfunda að verkefnum sem nýta má við kennslu í umhverfismennt í grunnskólum.
    Það er niðurstaða höfunda að mikilvægt sé að auka kennslu í umhverfismennt í íslenskum grunnskólum til þess að efla vitund nemenda um umhverfi þeirra. Ef ekkert er aðhafst í umhverfismálum verða umhverfisvandmál einungis stærri og fleiri og því ætti að hefja markvisst starf í umhverfisfræðslu strax í grunnskóla.

Athugasemdir: 
  • Verkefnið er lokað
Samþykkt: 
  • 1.1.2006
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/549


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
beturma.pdf553.21 kBLokaðurBetur má ef duga skal - heildPDF
beturma_e.pdf50.6 kBOpinnBetur má ef duga skal - efnisyfirlitPDFSkoða/Opna
beturma_h.pdf144.69 kBOpinnBetur má ef duga skal - heimildaskráPDFSkoða/Opna
beturma_u.pdf103.56 kBOpinnBetur má ef duga skal - útdrátturPDFSkoða/Opna