Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/5526
Vegna stöðugra breytinga á vinnumarkaði hefur aðlögunarhæfni þótt mikilvægur eiginleiki í nútíma samfélagi. Í rannsókninni verða próffræðilegir eiginleikar athugaðir á þvermenningarlegu mælitæki sem er nú í þróun samtímis í nokkrum löndum. Því er ætlað að meta aðlögunarhæfni á náms- og starfsferli (e. Career Adapt-Abilities Inventory, CAAI). Mælitækið byggir á hugsmíðahyggju dr. Mark Savickas um starfsferilinn. Þar er aðlögunarhæfni metin með fimm undirkvörðum; Umhugsun, Stjórn, Forvitni, Samvinnu og Sjálfstraust á starfsferli. Fyrst var gerð staðfestandi þáttagreining á úrtaki sem svaraði frumútgáfu listans (e. etic) (N=428) og úrtaki sem svaraði endurgerðri þýðingu listans (e. etic) (N=1249). Í ljós kom að þær breytingar sem gerðar höfðu verið á upprunalegu atriðum listans skiluðu sér í réttmætari mælingum í nokkrum tilvikum. Til að kanna hvort hægt væri að bæta hugtakaréttmæti mælitækisins enn frekar var staðfestandi þáttagreining notuð (N=1249) á endurgerðum lista með séríslenskum viðbótaratriðum (e. emic). Nokkrum viðbótaratriðum var bætt við á upprunalega kvarða listans ásamt tveim mögulegum þáttum, Forlagatrú og Samfélagsvitund. Í ljós kom að flest atriði virtust bæta réttmæti mælitækisins og áreiðanleiki var hár á undirkvörðum að Forlagatrú undanskildi. Huga þarf þó að réttmæti ákveðinna þátta og atriða. Gefnar eru leiðbeiningar um hvernig megi endurbæta mælitækið.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Sigríður Bríet- Cand.psych ritgerð Skemman.pdf | 680.34 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |