is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Heilbrigðisvísindasvið > B.S. verkefni - Heilbrigðisvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/5581

Titill: 
  • Forvarnir gegn of feitri æsku. Ávinningur til framtíðar?
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Ofþyngd og offita meðal barna og fullorðinna er vaxandi vandamál í hinum vestræna heimi. Fjölmargar rannsóknir hafa kannað áhrifaþætti sem tengjast vaxandi ofþyngd og þær alvarlegu afleiðingar sem sú þróun getur haft. Rannsóknir hafa leitt í ljós að svo árangur náist með forvarnarstarfi þurfa ýmsir þættir að fara saman til dæmis heilsuhvetjandi umhverfi, efnahagur, fyrirmyndir og þverfagleg sérfræðiþekking. Forvarnarstarf sem beinist sérstaklega að börnum hefur stóreflst á síðustu árum en börn eru mjög móttækileg bæði gagnvart breytingum og nýj-ungum. Börn eyða miklum hluta dagsins innan veggja leik- og grunnskóla og því eru skólar á-kjósanlegur vettvangur fyrir forvarnarstarf. Skólahjúkrunarfræðingar hafa það hlutverk að við-halda heilbrigði skólabarna og eru í lykilhlutverki til að hafa jákvæð áhrif í forvarnarstarfi innan grunnskóla jafnframt því að vera í góðum samskiptum bæði við börn og foreldra. Samvinna er mjög mikilvæg því bestur árangur er talinn nást í forvarnarstarfi ef foreldrar eru virkir þátttak-endur svo og skólar, fagfólk og samfélagið í heild sinni.
    Við gerð þessa þróunarverkefnis höfum við reynt að fá svar við eftirfarandi rannsóknar-spurningu: Bera núverandi forvarnir gegn offitu barna á Íslandi árangur?

Samþykkt: 
  • 10.6.2010
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/5581


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
HarpaogÞórey-1.pdf242.81 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna