is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Verkfræði- og náttúruvísindasvið > B.S. verkefni - Verkfræði- og náttúruvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/5583

Titill: 
  • Einangrun og greining 2-metoxýleraðra alkýlglýseróla í hákarlalýsi
Titill: 
  • Isolation and analysis of 2-methoxylated alkylglycerols in shark liver oil
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Aðalmarkmið verkefnisins var að rannsaka samsetningu metoxýleraðra alkýlglýseróla sem finnast í hákarlalýsi. Einangrun metoxýleruðu alkýlglýserólanna var í þremur meginskrefum. Fyrsta skrefið fól í sér metanólrof lýsisins sem leiddi til myndunar metýlestera fitusýranna og 1-O-alkýlglýseróla. Í öðru skrefinu var blandan sett á kísilgelssúlu þar sem sýni með metoxýleruðum og venjulegum alkýlglýserólum var safnað saman. Í þriðja skrefinu var sýninu komið fyrir á prep. TLC-plötu þar sem metoxýleruðu alkýlglýserólin voru einangruð. Greining á hreinleika efnisins var gerð með 1H-NMR-mælingu en greining á samsetningu metoxýleruðu eterlípíðanna í lýsinu með HPLC-MS-mælingum.
    Ennfremur fól verkefnið í sér greiningu á fitusýrusamsetningu hreins hákarlalýsis. Lýsinu var komið fyrir á prep. TLC-plötu og tvö lög aðgreind, annað með tríasýlglýserólum (TAG) og hitt með diasýlglýseróleterum (DAGE). Hvort um sig var sett í 1H-NMR greiningu og GLC-greiningu.

Samþykkt: 
  • 10.6.2010
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/5583


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Einangrun og greining 2-metoxýleraðra alkýlglýseróla í hákarlalýsi.pdf913.56 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna