is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Heilbrigðisvísindasvið > B.S. verkefni - Heilbrigðisvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/5599

Titill: 
  • Munur á setstöðu ófatlaðra barna og barna með CP mældur með þrýstimottu
  • Titill er á ensku Comparison of seating posture between typically developing children and children with CP measured with a pressure mat
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Í þessari rannsókn var athugað hvort munur væri á setstöðu 16 barna á aldrinum 4-10 ára með helftar- eða tvenndarlömun vegna CP og 16 ófatlaðra jafnaldra. Skilyrði fyrir þátttöku var að börnin með CP væru með grófhreyfifærni í flokki I-III og verri hreyfistjórn í annarri hlið líkamans. Börnin sátu á þrýstimottu og upplýsinga var aflað með henni um staðsetningu og hraða kraftmiðju. Tvær tveggja mínútna mælingar voru framkvæmdar á hverju barni með 10 mínútna millibili í þeirra skólaumhverfi. Á meðan mælingar fóru fram sátu börnin í sínum skólastólum og unnu verkefni við borð.
    Helstu niðurstöður voru að hvorki var marktækur munur á fjarlægð kraftmiðju frá miðlínu né hraða kraftmiðjunnar milli hópanna. Ófötluðu börnin fluttu þungann meira á milli hliða heldur en börnin með CP (p=0,039) í seinni mælingu og jákvæð fylgni var á milli hraða kraftmiðjunnar og fjarlægðar hennar frá miðlínu (p=0,015). Vísbendingar eru um að stuðningur undir fætur hafi jákvæð áhrif á jafnvægi barna með CP. Niðurstöðurnar benda því til þess að börnin með CP standa ekki verr að vígi vegna setstöðu sinnar í skólanum.
    Enn er þörf á að rannsaka setstöðu barna með CP frekar til þess að geta sagt til um hvort nauðsynlegt sé fyrir þennan hóp að fá meiri úrbætur á vinnuaðstöðu.

Samþykkt: 
  • 10.6.2010
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/5599


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Munur á setstöðu ófatlaðra barna og barna með CP mældur með þrýstimottu.pdf1.65 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna