is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskólinn á Akureyri > Heilbrigðisvísindasvið > Meistaraprófsritgerðir >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/5633

Titill: 
  • Starfsumhverfi og starfsánægja í heimilislækningum : reynsla 16 íslenskra heimilislækna sem starfað hafa bæði á Íslandi og í Noregi
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Bakgrunnur rannsóknarinnar. Þrátt fyrir að kannanir frá fjölda landa bendi til að
    starfsánægja heimilislækna sé að jafnaði há er streita, kulnun í starfi og andleg bágindi
    þessarar stéttar með því allra hæsta sem gerist á vinnumarkaði. Heimilislæknar á Íslandi hafa
    lengi búið við dræma nýliðun og hafa barist fyrir þeim réttindum að fá að vera sjálfstætt
    starfandi. Starfsemi sjálfstætt starfandi sérgreinalækna á Íslandi er viðamikil og frítt flæði
    sjúklinga án tilvísana frá heimilislæknum og ófullkomið skráningarkerfi sjúklinga einkennir
    heilbrigðisþjónustu utan sjúkrahúsa. Íslenskir heimilislæknar eru flestir opinberir starfsmenn
    á föstum launum ólíkt heimilislæknum margra nágrannaþjóða þar sem heimilislæknar hafa
    þann að kost að starfa sjálfstætt auk þess að stýra í vaxandi mæli flæði sjúklinga til
    sérhæfðrar heilbrigðisþjónustu með tilvísunum.
    Tilgangur. Kanna reynslu íslenskra heimilislækna, sem einnig hafa starfað í Noregi, til
    mismunandi vinnuumhverfis og starfsánægju heimilislækna hjá þessum tveim grannþjóðum.
    Aðferð og efniviður. Tekin voru hálfstöðluð viðtöl við 16 íslenska heimilislækna. Á
    rannsóknartímanum voru þeir allir starfandi á Íslandi. Tími frá heimkomu frá Noregi var 2-10
    ár. Beitt var eigindlegri aðferðarfræði, Vancouverskólanum í fyrirbærafræði. Með þessari
    rannsóknaraðferð er leitast við að auka skilning á mannlegum fyrirbærum meðal annars í
    þeim tilgangi að bæta þjónustu í heilbrigðiskerfinu.
    Niðurstöður. Að mati þátttakenda er sjálfsmynd og fagleg staða norskra heimilislækna
    styrkari en íslenskra starfsfélaga þeirra. Að hafa val um starfs- og launafyrirkomulag skiptir
    heimilislækna á Íslandi miklu máli. Sjálfstæður rekstur og afkastahvetjandi
    launafyrirkomulag var talið tengjast meira streitu og hættu á kulnun í starfi heldur en
    fyrirkomulag fastlauna og starf hjá hinu opinbera. Heimilislæknar sækjast ekki eftir
    atvinnurekandahlutverki en þarfnast sjálfdæmis í vinnu sinni með sjúklingum. Bein tengsl
    fundust ekki milli tilvísanakerfis og starfsánægju heimilislækna en þættir eins og gæði og
    Starfsumhverfi og starfsánægja í heimilislækningum
    vi
    skilvirkni þjónustunnar, öryggiskennd sjúklinga, samfella læknisþjónustu og minni kostnaður
    virðast tengjast virkum stýrikerfum í heilbrigðisþjónustu. Þetta er í samræmi við erlendar
    rannsóknir.
    Ályktanir. Rannsóknin varpar nokkru ljósi á ástæður slakrar faglegrar stöðu og mönnunarog
    ímyndarvanda íslenskra heimilislækna. Ræturnar virðast kerfislægar og óhagstæðar fyrir
    stétt heimilislækna á Íslandi, ríkissjóð og lýðheilsu. Við breytingar á skipulagi íslenskrar
    heilbrigðisþjónustu er vert að horfa til reynslu annarra þjóða af viðamiklum kerfisbreytingum
    á starfsumhverfi heimilislækna.

Athugasemdir: 
  • Verkefnið er lokað
Samþykkt: 
  • 18.6.2010
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/5633


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Hedinn_Master_Heild.pdf3.56 MBLokaðurStarfsumhverfi og starfsánægja í heimilislækningum : heildartextiPDF
Hedinn_Master_Opid.pdf1.09 MBOpinnStarfsumhverfi og starfsánægja í heimilislækningum - efnisyfirlit og heimildaskráPDFSkoða/Opna