is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskólinn á Akureyri > Heilbrigðisvísindasvið > Meistaraprófsritgerðir >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/5634

Titill: 
  • Reynsla fyrrverandi afreksíþróttafólks af afreksmennskunni
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Bakgrunnur: Erlendar rannsóknir hafa sýnt að álag á afreksíþróttamenn er mikið, en slíkar
    rannsóknir hafa ekki verið gerðar hér á landi.
    Tilgangur: Að auka skilning á reynslu og upplifun íslenskra afreksíþróttamanna af
    afreksíþróttamennsku og draga lærdóm af.
    Aðferðafræði: Eigindleg rannsóknaraðferð Vancouver-skólans í fyrirbærafræði var notuð
    við greiningu tólf opinna, óstaðlaðra viðtala við tíu fyrrverandi afreksíþróttamenn í
    einstaklingsíþrótt. Þátttakendur voru á aldrinum 29 - 47 ára, 6 karlar og 4 konur. Tíminn frá
    því að afreksmennsku lauk og þar til viðtölin voru tekin var frá 6 mánuðum til 14 ára.
    Niðurstöður: Greining rannsóknargagnanna leiddi í ljós fjögur meginþemu: Drifkraft,
    jákvæða þætti, neikvæða þætti og óuppfylltar þarfir. Drifkraftur þátttakenda var innri hvatir
    eins og metnaður, draumar um árangur, ánægja af hreyfingu og því að bæta sig,
    félagsskapurinn og það að læra nýja hluti. Ytri hvatir eins og peningastyrkir, fjölmiðlar og
    stuðningur fjölskyldu voru líka hvetjandi. Jákvæðir þættir afreksmennskunnar voru ánægjan
    af því að æfa og keppa, einstök tækifæri til menntunar og atvinnu sem og lífsreynslan úr
    íþróttaheiminum. Neikvæðir þættir voru einvera, sjálfhverfa og álag sem gat leitt út á ystu
    brún í glímu við meiðsli, ofþjálfun og tómleikann þegar skórnir voru lagðir á hilluna. Álaginu
    fylgdu erfiðleikar með svefn, átraskanir og aukin tíðni umgangspesta. Þarfir þátttakenda á
    meðan á afreksferlinum stóð snéru að félagslegum, fjárhagslegum og faglegum stuðningi auk
    þarfa fyrir stöðugleika og aðstoð með heildarskipulag sem og markvissari stuðning
    íþróttahreyfingarinnar.

Athugasemdir: 
  • Verkefnið er lokað til 7.7.2114.
Samþykkt: 
  • 18.6.2010
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/5634


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Sunna Gests_opid.pdf1.22 MBLokaður til...07.07.2114Reynsla fyrrverandi afreksíþróttafólks af afreksmennskunni - efnisyfirlit og heimildaskráPDF
Sunna Gests_Heild.pdf2.42 MBLokaður til...07.07.2114Reynsla fyrrverandi afreksíþróttafólks af afreksmennskunni - heildartextiPDF