Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/567
Í þessari ritgerð er fjallað um starfsánægju í leikskólum. Komið er inn á þróun hugmynda
og kenninga sem tengjast viðfangsefninu auk þess sem teknir eru fyrir afmarkaðir þættir
sem taldir eru stuðla að og viðhalda starfsánægju.
Til að kanna hvað þætti starfsfólk leikskóla leggur áherslu á með tilliti til
starfsánægju var gerð eigindleg rannsókn í formi rýnihópa. Settir voru saman þrír hópar
frá þremur leikskólum við utanverðan Eyjafjörð. Þátttakendur voru alls níu og áttu
einstaklingar innan hvers hóps það sameiginlegt að starfsheiti var það sama, það er
leikskólastjórar, leikskólakennarar og leiðbeinendur. Þessi skipting hópanna var gerð með
það að markmiði að kanna hvort mismunar gætti varðandi áhersluþætti eftir því hvaða
starfi viðkomandi gegndi. Einnig var spurningalisti lagður fyrir allt starfsfólk þeirra
leikskóla sem þátt tóku í rannsókninni með það að markmiði að styðja við niðurstöður úr
rýnihópunum.
Niðurstöður rannsóknarinnar voru þær helstar að starfsfólk taldi starfsánægju
mjög mikilvæga og skipta sköpun fyrir það starf sem fram færi í leikskólum. Ýmsir
áhrifaþættir voru taldir stuðla að starfsánægju og voru opin samskipti og góð samvinna
ofarlega í huga flestra. Leikskólastjóri var einnig talin hafa mikil áhrif sem og þær
stjórnunaraðferðir sem ríktu innan leikskólanna. Ekki var hægt að greina ákveðinn
áherslumun eftir starfsheiti fólks en svo virtist sem persónulegar upplifanir hvers og eins
hefðu meira vægi.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
veldurhver.pdf | 746.42 kB | Takmarkaður | Veldur hver á heldur - heild | ||
veldurhver_e.pdf | 321.13 kB | Opinn | Veldur hver á heldur - efnisyfirlit | Skoða/Opna | |
veldurhver_h.pdf | 333.9 kB | Opinn | Veldur hver á heldur - heimildaskrá | Skoða/Opna | |
veldurhver_u.pdf | 313.39 kB | Opinn | Veldur hver á heldur - útdráttur | Skoða/Opna |