is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskóli Íslands > Menntavísindasvið > Meistaraprófsritgerðir - Menntavísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/5692

Titill: 
  • Samstarfið er miklu öflugra en messugjörðin : áhrif samstarfs heimila og skóla á vímuefnaneyslu nemenda
Námsstig: 
  • Meistara
Höfundur: 
Útdráttur: 
  • Í ritgerðinni er velt upp þeirri spurningu hver séu tengsl mismunandi
    starfshátta í skólahverfum við vímuefnaneyslu nemenda. Fjallað er á
    fræðilegan hátt um vímuefnaneyslu unglinga á grunnskólaaldri en með
    vímuefnum er átt við tóbak, áfengi og hass. Áhrif fjölskyldu og umhverfis
    á vímuefnaneyslu unglinga eru skoðuð í ljósi kenninga Bourdieu og
    Durkheim um félagsleg tengsl. Einnig er fjallað um samstarf heimilis og
    skóla og hvaða þættir í því samstarfi geta haft áhrif á vímuefnaneyslu
    nemenda.
    Gerð var eigindleg viðtalsrannsókn, þar sem rætt var við forsvarsmenn
    skóla og foreldrafélaga í þrem skólahverfum um það hvernig samstarfi
    þeirra væri háttað. Niðurstöður viðtalanna eru skoðaðar og greindar og
    bornar saman við tölfræðileg gögn frá Rannsóknum og greiningu um
    vímuefnaneyslu nemenda síðustu ár í sömu hverfum og þátttökuskólarnir
    eru. Niðurstöðurnar benda til þess að mismunandi áherslur í samstarfi
    heimila og skóla hafi áhrif á vímuefnaneyslu nemenda. Minni
    vímuefnaneysla er meðal nemenda þar sem skóli og foreldrafélag vinna
    saman að vímuvarnastarfi. Langvarandi verkefni, sem bæði skóli og
    foreldrafélaga vinna saman að og eiga að koma í veg fyrir
    vímuefnaneyslu, virðast skila mælanlegum árangri.
    Aukna þekkingu á mikilvægi tengsla heimils og skóla má líklega
    yfirfæra á önnur sameiginleg viðfangsefni eins og það að draga úr einelti
    og efla heilbrigða lífshætti.

Samþykkt: 
  • 22.6.2010
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/5692


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Samstarfið er miklu öflugra en messugjörðin.pdf772.47 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna