Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/5707
Almennar samgöngur um Ísland er sífellt verið að bæta og munu gömlu
malarvegirnir brátt heyra sögunni til. Hins vegar hefur samgönguleiðin á
milli Vestmannaeyja og fasta landsins orðið útundan í þessum efnum, þar
til árið 2006, en þá var loks tekin ákvörðun um að höfn í Bakkafjöru yrði
raunin, öðru nafni Landeyjahöfn.
Þann 1. júlí 2010 verður því brotið blað í sögu samgangna á milli lands og
Eyja með því að hefja siglingar á milli Vestmannaeyja og
Bakkafjöruhafnar í stað Þorlákshafnar. Er þetta mikil samgöngubót fyrir
samfélagið í Vestmannaeyjum og er meginmarkmið þessa verkefnis að
skoða þá kosti og þau tækifæri sem koma til með að opnast með tilkomu
Bakkafjöruhafnar.
Ferðaþjónustan í Vestmannaeyjum er skoðuð sérstaklega og þeir
möguleikar sem opnast með auknum ferðamannastraumi til Eyja. Skoðað
er hvort og hvernig auknar tekjur myndu skila sér inn í bæjarsjóð með
þessum aukna ferðamannastraumi.
Niðurstöður leiddu í ljós að strax við opnun Bakkafjöruhafnar má reikna
með aukinni aðsókn ferðamanna í sund, þar sem sund er vinsælasta
afþreying sem ferðamenn greiða fyrir. Þar af leiðandi munu þjónustutekjur
vegna aðgöngueyris í sund skila sér sem auknar tekjur inn í bæjarsjóð.
Síðan, með tíma og reynslu af Bakkafjöru, munu auknar tekjur skila sér
inn í bæjarsjóð í formi útsvars, aukinna tekna vegna fasteignagjalda og
annarra þjónustutekna en aðgöngueyris í sund.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
BAKKAFJÖRUHÖFN.pdf | 499 kB | Opinn | "Bakkafjöruhöfn:Áhrif nýrrar hafnar á Vestmannaeyjar"-heild | Skoða/Opna | |
EFNISYFIRLIT.pdf | 14.86 kB | Opinn | "Bakkafjöruhöfn:Áhrif nýrrar hafnar á Vestmannaeyjar"-efnisyfirlit | Skoða/Opna | |
HEIMILDASKRÁ.pdf | 34.61 kB | Opinn | "Bakkafjöruhöfn:Áhrif nýrrar hafnar á Vestmannaeyjar"-heimildaskrá | Skoða/Opna |