Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/5710
Markmið þessa verkefnis er að draga ályktanir af skipulagi, stefnumótun, rekstrarformi og árangri stjórnenda lítilla fyrirtækja í vexti á Norðurlandi vestra.
Notað var Europe Foundation Quality Management árangursmatskerfið eða EFQM til að meta rekstrarárangur stjórnenda. Matinu var skipt í eftirfarandi þætti; stjórnun, stefnu, fólk, samstarfsaðila og auðlindir, ferli og lykilárangur listuð í skýringartöflur.
Notuð var eigindleg rannsóknaraðferð og tekin djúpviðtöl við stjórnendur þriggja fyrirtækja sem hafa verið í vexti. Niðurstöður viðtalanna voru bornar saman við umfjöllun fræðimanna á sviði stjórnunar. Vísbendingar eru um að lítil fyrirtæki í vexti á Norðurlandi vestra þurfi ekki skráða stefnumiðaða stjórnun né formlegt árangursmatskerfi á meðan stjórnendur hafa yfirsýn yfir markmið sem farið er eftir. Þeir halda góðu sambandi við starfsmenn, viðskiptavini og eigendur og forystuhæfileiki stjórnenda hefur mikil áhrif á stjórnunaraðferðir þeirra og árangur. Formlegt árangursmat fer ekki fram innan fyrirtækjanna.
Lítil fyrirtæki í vexti geta haldið áfram að vaxa meðan stjórnendur hafa yfirsýn yfir þau. Ef stjórnendur vilja ná framúrskarandi árangri ættu þeir að koma á markvissu stjórneftirlits- og árangursmatskerfi.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Lítil fyrirtæki í vexti - án dagbók.pdf | 1.45 MB | Opinn | Meginmál | Skoða/Opna | |
Lítil fyrirtæki í vexti - með dagbók.pdf | 1.46 MB | Opinn | Meginmál | Skoða/Opna | |
Lítil fyrirtæki í vexti - efnisyfirlit.pdf | 21.4 kB | Opinn | Efnisyfirlit | Skoða/Opna | |
Lítil fyrirtæki í vexti - heimildaskrá.pdf | 41.48 kB | Opinn | Heimildaskrá | Skoða/Opna | |
Lítil fyrirtæki í vexti - útdráttur.pdf | 24.76 kB | Opinn | Útdráttur | Skoða/Opna |