is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Akureyri > Viðskipta- og raunvísindasvið > B.S. verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/5711

Titill: 
  • Þjónustufyrirtæki á fjármálasviði : ráðningar og nýliðaþjálfun
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Ráðning starfsmanns er ferli sem gjarnan er kostnaðarsamt og tímafrekt.
    Mikilvægt er að forsvarsmenn fyrirtækja og þeir sem sjá um ráðningar í
    fyrirtækjum vandi vel til verka þegar farið er í gegnum ráðningarferlið. Aukinn
    kostnaður felst í því þegar auglýsa þarf starf á nýjan leik, fara í gegnum
    valferlið, ráða og þjálfa nýjan einstakling.
    Margvíslegar aðferðir eru til við öflun umsækjenda um starf og mat á þeim
    umsækjendum sem sækja um. Rannsóknir hafa leitt í ljós að matsaðferðirnar
    eru misáreiðanlegar og því misjafnlega til þess fallnar að skila þeirri niðurstöðu
    sem ætlast er til.
    Nýliðaþjálfun er mikilvægt framhald af ráðningu í starf. Taka þarf á móti
    nýjum starfsmanni og koma honum inn í starfið og allt sem því tilheyrir á sem
    skilvirkastan hátt og skemmstum tíma.
    Þegar litið er á helstu niðurstöður þá kemur í ljós að flest fyrirtækjanna eru að
    nýta sér fræðin að einhverju leyti við ráðningar, starfsmannaval og
    nýliðaþjálfun. Einnig kom í ljós að stærri fyrirtækin voru markvissari í vinnslu
    þessara mála heldur en þau sem minni eru. Hafa ber þó í huga við lestur
    niðurstaðna rannsóknarinnar að úrtakið náði aðeins til fimm bókhaldsstofa.
    Lykilorð: Bókhaldsstofur – ráðningar – starfsmannaval – nýliðaþjálfun

Athugasemdir: 
  • Verkefnið er lokað til 30. júní 2013
Samþykkt: 
  • 23.6.2010
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/5711


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Þjónustufyrirtæki á fjármálasviði - ráðningar og nýliðaþjálfun.pdf652.81 kBOpinnheildPDFSkoða/Opna
Þjónustufyrirtæki á fjármálasviði - ráðningar og nýliðaþjálfun - efnisyfirlit.pdf23.17 kBOpinnEfnisyfirlitPDFSkoða/Opna
Þjónustufyrirtæki á fjármálasviði - ráðningar og nýliðaþjálfun - heimildaskrá.pdf44.18 kBOpinnHeimildaskráPDFSkoða/Opna
Þjónustufyrirtæki á fjármálasviði - ráðningar og nýliðaþjálfun - útdráttur.pdf21.54 kBOpinnútdrátturPDFSkoða/Opna