is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Akureyri > Viðskipta- og raunvísindasvið > B.S. verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/5714

Titill: 
  • Hagkvæmni þess að reka strandsiglingaskip við Ísland
Námsstig: 
  • Bakkalár
Höfundur: 
Leiðbeinandi: 
Útdráttur: 
  • Strandsiglingar við Ísland voru stundaðar í árhundruð en lögðust af árið 2004 þegar Eimskipafélag Íslands lagði sínu síðasta strandflutningaskipi. Samskip höfðu hætt strandflutningum fjórum árum fyrr og Skipaútgerð ríkisins hætti árið 1992.
    Landflutningar höfðu aukist mikið áratugina á undan og eru nú nær allsráðandi. Helstu ástæður þess að strandsiglingar lögðust af voru:
    1. Styttingar og endurbætur á vegakerfinu.
    2. Breyttir atvinnuhættir og minnkandi byggðakjarnar á landsbyggðinni.
    3. Krafa um skemmri afhendingartíma og tíðari afhendingar, m.a. með tilkomu fiskmarkaða.
    Verð ræður miklu um hvaða flutningsleið fyrirtæki velja, en í tilfelli landflutninga er aðeins hluti þess samfélagslega kostnaðar sem flutningarnir valda endurgreiddir í formi skatta og gjalda til ríkisins. Raun¬kostnaður við flutning er því hærri en sá sem flutningafyrirtækið rukkar.
    Í þeim útreikningum sem hér eru gerðir kom í ljós að aðeins þarf að flytja árlega 67.497 tonn af vöru með strandflutningaskipi á 6.200 kr tonnið án VSK til að komast á núllpunkt án fjármagnskostnaðar. Meðal kostnaður við flutning með bíl er aftur á móti 10.391 kr tonnið án VSK m.v. tilboðsverð til meðalstórs fiskframleiðanda. Hér er ekki sérstaklega gert ráð fyrir þeim samfélagslega kostnaði sem flutningabílar valda.
    Þrátt fyrir skakka samkeppnisstöðu strandflutninga við landflutninga benda niðurstöður þessarar rannsóknar á hagkvæmni þess að reka strandsiglingaskip við Ísland til að strandflutningar séu hagkvæmir til lengri tíma litið, en gríðarlega áhættusamir, fyrir þann aðila sem gerir út skipið. Það má ekki mikið út af bregða til að tap verði á rekstrinum. Hagkvæmnin er þó mest fyrir þann sem kaupir þjónustuna í formi lægri flutningsgjalda og fyrir þjóð-félag¬ið í formi lægri samfélagskostnaðar af flutningum.

Athugasemdir: 
  • Verkefnið er lokað
Samþykkt: 
  • 23.6.2010
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/5714


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
lokaútgáfa.pdf2.29 MBLokaður"Hagkvæmni þess að reka strandsiglingaskip við Ísland" - heildPDF
útdráttur.pdf72.61 kBOpinn"Hagkvæmni þess að reka strandsiglingaskip við Ísland" - útdrátturPDFSkoða/Opna
heimildaskrá.pdf120.54 kBOpinn"Hagkvæmni þess að reka strandsiglingaskip við Ísland" - heimildaskráPDFSkoða/Opna
efnisyfirlit.pdf81.05 kBOpinn"Hagkvæmni þess að reka strandsiglingaskip við Ísland" - efnisyfirlitPDFSkoða/Opna