is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Akureyri > Hug- og félagsvísindasvið > B.A./B.Ed. verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/573

Titill: 
  • Öll börn eru einstök
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Saga fatlaðra á Íslandi hefur tekið miklum breytingum síðastliðna áratugi. Áður fyrr birtist viðhorf gagnvart fötluðu fólki af þekkingaleysi þar sem fötlun var ekki viðurkennd sem slík. Fatlaðir einstaklingar voru litnir hornauga og litið á þá sem skömm. Um þessar mundir er staða fólks með fötlun önnur, fötlun er viðurkennd og það hefur sín réttindi. Í fyrsta hluta ritgerðarinnar förum við hratt yfir sögu þeirrar þróunar sem átt hefur sér stað hér á landi varðandi málefni fatlaðra.
    Í öðrum hluta ritgerðarinnar er sérstaklega fjallað um fötlunina einhverfu og hvernig hún lýsir sér, hegðunareinkenni barna með einhverfu og einhverfurófið sem felur í sér sex megin flokka. Við útskýrum í stuttu máli hvern flokk fyrir sig og hvaða hegðunareinkenni einhverfir bera í hverjum flokki. Til þess að einstaklingur flokkist sem einhverfur þarf hann greiningu. Greining er margþætt ferli sem fer fram á Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins og er gerð grein fyrir því.
    Börn með einhverfu sækja skóla eins og önnur börn. Við skoðum réttindi einhverfa barna og möguleika á úrræðum í leik- og grunnskólum.
    Okkur þykir forvitnilegt að vita hvort réttindum barna með einhverfu og foreldra þeirra sé fylgt eftir. Við gerðum könnun á þessum þáttum. Tekin voru viðtöl við starfsfólk í leikskóla, grunnskóla og foreldra þriggja barna með einhverfu. Leik- og grunnskólakennararnir starfa allir með einhverf börn en hafa mismikla menntun og reynslu. Í fjórða kafla má sjá niðurstöður könnunarinnar.
    Í niðurstöðum kom meðal annars fram að erfiðara er fyrir foreldra og börn að vitja réttinda sinna þegar í grunnskóla er komið en í leikskóla. Þrátt fyrir þetta er ánægjulegt að segja frá því að allir, jafnt foreldrar sem kennarar sögðust mjög ánægðir með þann stuðning og styrk sem þeim er veittur frá Fjölskyldudeild Akureyrarbæjar.

Athugasemdir: 
  • Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri
Samþykkt: 
  • 1.1.2006
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/573


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
ollborn.pdf426.09 kBTakmarkaðurÖll börn eru einstök - heildPDF
ollborn_e.pdf70.55 kBOpinnÖll börn eru einstök - efnisyfirlitPDFSkoða/Opna
ollborn_h.pdf126.15 kBOpinnÖll börn eru einstök - heimildaskráPDFSkoða/Opna
ollborn_u.pdf59.23 kBOpinnÖll börn eru einstök - útdrátturPDFSkoða/Opna