is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Akureyri > Viðskipta- og raunvísindasvið > B.S. verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/5759

Titill: 
  • Skiptir stærð máli í rekstri íslenskra sveitarfélaga?
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Á undanförnum árum og áratugum hafa íslensk stjórnvöld hvatt sveitarfélögin til sameininga í þeim tilgangi að gera þau að stærri og öflugri einingum. Fámennustu sveitarfélögin eiga nú þegar erfitt með að sinna sínum lagalegu skyldum og því er ljóst að ástandið verður mjög erfitt fyrir þau á komandi árum þegar ný verkefni flytjast frá ríki til sveitarfélaga. Viðhorf stjórnvalda er að fjölmenn sveitarfélög eru hagkvæmari í rekstri en þau fámennari.
    Rannsóknarverkefni þetta reynir að svara þeirri spurningu hvort stærð (íbúafjöldi) skýrir hagkvæmni í rekstri sveitarfélaga. Til að svara spurningunni var kannað sambandið milli stærðar og útgjalda á íbúa hjá 79 sveitarfélögum í landinu árið 2007. Þá var einnig kannað sambandið milli útgjalda á íbúa og stærðar í þremur málaflokkum sveitarfélaga, en það eru félagsþjónusta, fræðslu- og uppeldismál og yfirstjórn.
    Helsta aðferðin sem notuð var til að svara rannsóknarspurningunni var aðhvarfsgreining en einnig voru notaðar fylgnimælingar og greining á meðalútgjöldum eftir stærðarhópum sveitarfélaga. Niðurstöður rannsóknarinnar eru síðan ræddar og skýrðar út frá kenningum um hagkvæmni, bolmagn, mismunandi verkefni og gæði.
    Lykilorð: Sveitarfélög, stærðarhagkvæmni, aðhvarfsgreining, fylgnimælingar, greining á meðalútgjöldum eftir stærðarhópum.

Athugasemdir: 
  • Verkefnið er lokað
Samþykkt: 
  • 23.6.2010
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/5759


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
isl.sveitarf.staerd_efn..pdf51.1 kBOpinn"Skiptir stærð máli í rekstri íslenskra sveitarfélaga" - efnisyfirlitPDFSkoða/Opna
isl.sveitarf.staerd_heim..pdf59.96 kBOpinn"Skiptir stærð máli í rekstri íslenskra sveitarfélaga" - heimildaskráPDFSkoða/Opna
isl.sveitarf.staerd_vid1.pdf645.99 kBLokaður"Skiptir stærð máli í rekstri íslenskra sveitarfélaga" - fylgisk1PDF
isl.sveitarf.staerd_vid2.pdf485.38 kBLokaður"Skiptir stærð máli í rekstri íslenskra sveitarfélaga" - fylgisk2PDF
isl.sveitarf.staerd_vid3.pdf506.85 kBLokaður"Skiptir stærð máli í rekstri íslenskra sveitarfélaga" - fylgisk3PDF
isl.sveitarf.staerd_vid4.pdf267.18 kBLokaður"Skiptir stærð máli í rekstri íslenskra sveitarfélaga" - fylgisk4PDF
isl.sveitarf.staerd_heild.pdf954.66 kBLokaður"Skiptir stærð máli í rekstri íslenskra sveitarfélaga" - heildPDF