Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/5772
Tilgangur þessarar rannsóknar er að fá innsýn í reynslu nýliða í tungumálakennslu á framhaldsskólastigi. Markmiðið er að fá innsýn í hvaða kennsluaðferðum nýliðarnir beita og hvernig þeir upplifa að faglegt sjálfstraust, eða skortur á því, efli eða hamli þá í að beita þeim kennsluaðferðum sem þeir helst vildu. Rannsóknin var gerð á vorönn 2010 og eigindleg aðferðafræði var notuð við gagnaöflun og úrvinnslu gagna. Gögnum var safnað með viðtölum við þrjá nýliða í tungumálakennslu á framhaldsskólastigi, vettvangsathugunum og sjálfsmatsrömmum sem lagðir voru fyrir kennarana. Helstu niðurstöður eru þær að nýliðarnir beita nokkuð mismunandi kennsluaðferðum. Þeir segjast þó allir leggja áherslu á að tala markmálið í kennslustundum en það virðist ganga misvel þegar á hólminn er komið. Kennararnir telja að faglegt sjálfstraust þeirra hafi aukist jafnt og þétt eftir að þeir hófu kennslu. Það hafi m.a. hjálpað þeim að halda þeirri áherslu á kennsluaðferðir sem þeir vilja beita. Niðurstöðurnar benda einnig til að miðað við reynslu þessara nýliða þurfi að bæta úr stuðningi við nýliða í kennslu og huga þurfi að endurbótum og lengingu á kennslufræðihluta fagkennara.
Lykilorð: Nýliðar, faglegt sjálfstraust.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
M.Ed. ritgerð Áslaug Harðardóttir.pdf | 402.58 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |