Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/5775
Ritgerðin fjallar um hvernig bílar framtíðarinnar munu vera, út frá umhverfis- og orkulegu sjónarhorni. Fjallað er um ástæður þess af hverju bílaþróunin í þá átt að skipta um orkugjafa sé nauðsynleg. Þar ber helst að nefna hnattræna hlýnun, mengun og minnkandi olíubirgðir.
Litið er á mögulega orkugjafa og orkubera fyrir framtíðina. Bæði óhefðbundnar eldsneytistegundir sem og rafhlöður. Nefndar eru nokkrar tegundir eldsneytis og einnig nokkrar tegundir rafhlaða, sem eru í stöðugri þróun.
Farið er yfir vinnu þriggja af stærstu bílaframleiðendum heims og hvaða bílar hafa verið að koma á göturnar frá þeim undanfarið og hvað er á dagskrá í nánustu framtíð. Volkswagen einbeita sér að því að gera bensín- og dísilbíla sparneytnari og umhverfisvænni, en Toyota einbeita sér meira að þróun tvinnbíla og tengiltvinnbíla. Ford virðast svo vera mitt þar á milli.
Í kafla fjögur er svo fjallað um löggjöf sem varðar losun koldíoxíðs frá bílum og einnig hugsanleg áhrif fjármálakreppunnar á bílaþróunina. Mikilvægast er þó að niðurstöður ritgerðarinnar eru þær, að til skamms tíma litið munu sparneytnir bensín- og dísilbílar og tvinnbílar ráða ríkjum. Þar á eftir munu koma tengiltvinnbílar og loks munu flest allir nýjir bílar verða rafbílar.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Bílar framtíðarinnar, Björgvin.pdf | 1.04 MB | Opinn | Ritgerðin fjallar um hvernig bílar framtíðarinnar munu verða út frá umhverfis- og orkulegum sjónarmiðum | Skoða/Opna |