Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/5841
Menntun er þáttur í að skapa þjóðarverðmæti og hún viðheldur menningu okkar og réttlæti.
Menntun er þáttur í verðmætasköpun og stefna okkar á að vera sú að nemendur nái sem bestum
árangri. Við segjum að allir eigi að fá tækifæri til að leika sér með málið okkar með fjölbreyttum
hætti og fá verkefni sem samræmist þroska og hæfileika hvers og eins, en stóra spurningin er,
„Er það svo?“.
Í þessari lokaritgerð til B.Ed. prófs við kennaradeild Háskólans á Akureyri vorið 2010 er
fjallað um dyslexíu, rannsóknir á henni, úrræði fyrir nemendur, hvort ein lestraraðferð henti betur
en önnur og að lokum hvort skólinn sé fyrir alla nemendur og að allir nemendur geti á sínum
forsendum náð árangri í námi.
Í yfirlýsingu frá IDA (2002) segir dyslexía er sértækur námsörðugleiki af taugalíffræðilegum
uppruna. Einkennin birtast í erfiðleikum með sjálfvirkan lestur, slaka færni í ritun og
umskráningu. Erfiðleikana má í flestum tilfellum rekja til vanda við úrvinnslu málhljóða sem er
ekki í samræmi við aðra vitsmunalega hæfni einstaklingsins og koma fram þrátt fyrir vandaða
lestrarkennslu. Dyslexía getur leitt til erfiðleika með lesskilning og ónógrar lestrarreynslu, sem
aftur kemur niður á þróun orðaforða og öflun þekkingar í gegnum lestur (The International
Dyslexia Association).
Rannsóknum á lestrarerfiðleikum hefur fleygt fram á undanförnum árum og áratugum.
Lagðar hafa verið fram nýjar skilgreiningar á dyslexíu og tengdum hugtökum. Rík áhersla hefur
verið á að rannsaka innri orsakir dyslexíu eins og hljóðkerfisvanda og veikleika í taugafrumum í
heila (magno- og pavro). En þrátt fyrir miklar rannsóknir hefur ekki fundist einhver ein
niðurstöða eða próf sem greina dyslexíu strax á fyrstu skólaárum nemenda.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
dyslexía lokaútgáfa.pdf | 464.04 kB | Opinn | Heild | Skoða/Opna |