Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/5852
Rannsóknarskýrsla þessi fjallar um unga einstaklinga sem misst hafa vinnuna. Allir þátttakendurnir eru á aldrinum 18-22 ára og búa á svæði Vinnumálastofnunar Norðurlands eystra. Meðalatvinnuleysi ungmennanna í úrtakinu okkar hafði varað í um það bil tíu mánuði. Markmið rannsóknar okkar er að komast að því hvernig atvinnuleysi hefur áhrif á líðan þeirra. Eftir efnahagshrunið 2008 þá jókst atvinnuleysi mikið á Íslandi og þeir sem yngstir eru missa fyrstir vinnuna. Tekin voru eigindleg viðtöl við átta einstaklinga, fjórar stúlkur og fjóra pilta, til þess að fá innsýn inn í aðstæður þeirra. Niðurstaða rannsóknarinnar sýndi að þeir viðmælendur sem höfðu farið aftur í nám eftir atvinnumissinn leið mun betur andlega heldur en hinum. Þau höfðu ákveðinn tímaramma sem þau fóru eftir og dagarnir voru skipulagðir fyrirfram. Sjálfsmynd þeirra var góð, matar- og svefnvenjur voru reglulegar og þau fundu ekki fyrir neikvæðu viðmóti eða fordómum frá samfélaginu. Allir viðmælendur fengu stuðning frá foreldrum sínum en stuðningur foreldra virðist vera afgerandi þáttur í því að draga úr andlegri vanlíðan hjá ungu fólki sem misst hefur vinnuna.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Áhrif atvinnuleysis á líðan ungs fólks á aldrinum 18-22 ára.pdf | 1.26 MB | Opinn | Áhrif atvinnuleysis á líðan ungs fólks á aldrinum 18-22 ára-heild | Skoða/Opna |