is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Akureyri > Hug- og félagsvísindasvið > B.A./B.Ed. verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/5873

Titill: 
  • Lífsgæði unglingsstúlkna í Mývatnssveit : framtíðarhorfur og búseta
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Í mörgum af þeim löndum sem tilheyra norðurslóðum er töluvert algengt að lítil afskekkt sveitarfélög eigi við viðvarandi fólksfækkun að stríða. Nokkrar rannsóknir hafa verið gerðar með það markmið að skoða hvers vegna fólk flytur í burtu og hvers vegna lítil endurnýjun á sér stað. Rannsóknir af þessu tagi hafa verið gerðar til að mynda í Grænlandi, Kanada og Rússlandi. Flestar rannsóknir sýna að ungar konur, fyrst og fremst, flytja burt úr smáum sveitarfélögum, oftast til þess að mennta sig en einnig í leit að öðrum tækifærum í þéttbýlinu. Margar stúlkur fundu fyrir því að búa í fámennu samfélagi, þeim fannst þær vera dæmdar og finna fyrir einmanaleika. Í þessari ritgerð er sveitarfélagið Skútustaðahreppur rannsakað, framtíðarhorfur unglingsstúlkna kannaðar og væntingar þeirra til framtíðarbúsetu í Skútustaðahreppi. Niðurstöður þessarar könnunar sýna allt aðra niðurstöðu en þær erlendu kannanir sem skoðaðar hafa verið. Þessi könnun leiddi í ljós að unglingsstúlkum líður vel í sveitarfélaginu og þær eru ánægðar með hlutskipti sitt. Allar stúlkurnar ætla í burtu til þess að mennta sig að grunnskólanámi loknu og um helmingur þeirra telur að þær muni hafa möguleika á atvinnu í framtíðinni í Skútustaðahreppi. Mæður þeirra sjá þó ekki mikla framtíðarmöguleika fyrir stúlkurnar. Ef framtíðarhorfur unglingsstúlknanna ná fram að ganga gæti það orðið til þess að fjölgun muni verða í samfélaginu í framtíðinni og þar með auknir möguleikar á atvinnu.

Athugasemdir: 
  • Verkefnið er lokað til 1. júlí 2010
Samþykkt: 
  • 25.6.2010
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/5873


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
BA_skemman_lífsgæðiunglingsstúlkna.pdf830.75 kBOpinnHeildarútgáfa lokaritgerðarPDFSkoða/Opna