is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Akureyri > Hug- og félagsvísindasvið > B.A./B.Ed. verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/588

Titill: 
  • Sunnlenskir feður : viðhorf og væntingar feðra til menntunar sona sinna
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Tilgangur rannsóknarinnar er að skoða hverjar væntingar feðra eru til menntunar sona sinna, hver viðhorf þeirra eru til leikskólanna og hve mikil þátttaka þeirra er í samstarfi heimilis og leikskóla. Þar er átt við það samstarf sem lýtur að foreldrafundum, foreldraviðtölum og hversu oft feðurnir koma inn á leikskóla sona sinna. Framkvæmd var könnun meðal feðra í tveimur leikskólum og var svarhlutfall tæp 30%. Slíkt svarhlutfall er talið eðlilegt í rannsókn sem þessari þar sem spurningalistinn var sendur út til þátttakenda í pósti. Því má gera ráð fyrir að niðurstöðurnar gefi vísbendingu um hvernig áðurnefndum atriðum er háttað meðal feðra almennt.
    Helstu niðurstöður rannsóknarinnar voru þær að feður gera kröfur um að synir þeirra sæki sér fremur háskólamenntun en aðra menntun og þeir feður sem áttu líka dóttur vildu að hún næði sama starfsframa og sonurinn. Feðurnir gera því sömu væntingar til barna sinna óháð kyni og er fylgni á milli menntunarkröfu þeirra og eigin menntunar. Viðhorf feðranna til leikskólans myndi ég telja gott, flestum finnst mikilvægt að í leikskólunum séu starfandi leikskólakennarar enda telja þeir leikskólann vera fyrsta skólastig sona sinna. Feður vilja verja meiri tíma með sonum sínum en þeir gera í dag, enda nefna þeir tímaskort sem mesta vandann við uppeldi sona sinna. Eflaust hefur álag á vinnumarkaði sitt að segja í þeim efnum. Í ljós kom að feðurnir taka lítinn þátt í samstarfi heimilis og leikskóla, þeir koma sjaldan inn í leikskóla sona sinna, mæta sjaldan í foreldraviðtöl og enn síður á foreldrafundi. Í lok rannsóknarinnar eru lagðar fram tillögur til að bæta þessi samskipti.

Athugasemdir: 
  • Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri
Samþykkt: 
  • 1.1.2006
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/588


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
sunnlenskir.pdf376.31 kBTakmarkaðurSunnlenskir feður - heildPDF
sunnlenskir_e.pdf131.92 kBOpinnSunnlenskir feður - efniyfirlitPDFSkoða/Opna
sunnlenskir_h.pdf111.58 kBOpinnSunnlenskir feður - heimildaskráPDFSkoða/Opna
sunnlenskir_u.pdf76.97 kBOpinnSunnlenskir feður - útdrátturPDFSkoða/Opna