Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/5910
Hér verða kynntar niðurstöður rannsóknar á kennsluefninu Stig af stigi
þar sem markmiðið var að kanna hvernig Stig af stigi er notað með fimm
ára börnum í einum leikskóla og hvernig börnin læra af kennsluefninu.
Beitt var eigindlegum rannsóknaraðferðum, tilviksrannsókn og voru
þátttakendur þrír kennarar og átta börn. Helstu niðurstöður voru að börnin
bjuggu yfir hæfni til að setja heiti á tilfinningar, gátu lesið úr tilfinningum
annarra og gátu tengt tilfinningar við athafnir. Til dæmis lýstu þau
samkennd sem hjálpsemi, að setja sig í spor annarra, gagnkvæmri
virðingu og tillitsemi við náungann. Kennarar töldu börnin ekki hafa getu
til að greina og leysa vandamál ef þau væru sjálf hluti af vandamálinu en
börnin töldu sig hafa þá hæfni. Flest börnin sögðu Stig af stigi vera
skemmtilegt. Börnin brugðust vel við þeim aðferðum sem kennarar
beittu, s.s leikrænni tjáningu. Kennarar töldu framsetningu skipta miklu
máli og að helstu aðferðir þeirra væru leikræn tjáning, virk hlustun og
hrós. Kennarar höfðu mikla trú á kennsluefninu og töldu Stig af stigi
kennsluefnið vera góða viðbót við óhefðbundið nám barna í leikskóla.
Auk þess telja þeir að börnin öðlist aukna hæfni til að setja sig í spor
annarra, auki getu sína til að lesa í og greina tilfinningar sínar og annarra
og vera óhræddari við að sækjast eftir hjálp.
Lykilorð: Félags- og tilfinningaþroski, rannsókn með börnum.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Félagsfærniþjálfun- Stig af stigi með fimm ára börnum.pdf | 716.23 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |