is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskólinn á Bifröst > Lagadeild > Meistaraverkefni í lagadeild (MA/ML) >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/6023

Titill: 
  • Endurupptaka bótaákvörðunar vegna varanlegs líkamstjóns
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Með 11. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993 voru settar reglur um endurupptöku bótaákvarðana vegna varanlegs líkamstjóns, en ákvæðið var tekið beint upp úr dönsku skaðabótalögunum. Þar er að
    finna þau efnislegu skilyrði sem uppfylla þarf til þess að endurupptaka verði heimiluð. Þau skilyrði eru tvíþætt. Annars vegar þurfa að hafa orðið ófyrirsjáanlegar breytingar á heilsu tjónþola frá tjónsuppgjörinu og hins vegar þurfa þær breytingar að vera þess eðlis að ætla megi að miskastig eða örorkustig sé verulega hærra en talið var við uppgjörið. Dómstólar hafa skýrt
    skilyrðið um verulega hækkun á þann hátt að aðeins skuli líta til þess hversu mikil hækkunin er í stigum talið, en hafa talið að ekki skuli líta til hlutfallslegrar hækkunar við matið. Íslenskir
    dómstólar hafa hingað til talið að fimm stiga hækkun á miskastigi eða örorkustigi sé ekki nægjanleg svo skilyrðið um verulega hækkun teljist uppfyllt. Danskir dómstólar töldu hins vegar
    að ekki þyrfti að hafa orðið jafn mikil hækkun svo hækkun teljist veruleg í skilningi ákvæðisins, fimm stiga hækkun væri nægjanleg

Samþykkt: 
  • 12.8.2010
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/6023


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Endurupptaka bótaákvörðunar_ML ritgerð_Þórður Már Jónsson.pdf663.51 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna