is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Bifröst > Viðskiptadeild > Lokaverkefni í viðskiptadeild (BS) >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/6083

Titill: 
  • Fjármálaeftirlit á Íslandi : á að sameina Fjármálaeftirlitið við Seðlabanka Íslands?
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Undirrituð hefur verið nemandi í viðskiptafræði í Háskólanum á Bifröst frá hausti 2006 til og með vorsins 2010. Eftirfarandi útskriftarritgerð er unnin á vormisseri 2010 til B.Sc. prófs. Markmiðið með ritgerðinni var að svara eftirfarandi rannsóknarspurningu:
    Á að sameina Fjármálaeftirlitið við Seðlabanka Íslands?
    Ritgerðarhöfundur er starfsmaður Fjármálaeftirlitins og hafði nýhafið störf þar haustið 2008 þegar bankarnir hrundu, því vaknaði áhugi undirritaðrar á því hvort fyrirkomulag Fjármálaeftirlitsins í dag sé eins og best verður á kosið eða hvort beri að horfa til baka til þess tíma þegar fjármálaeftirlit var hluti af verkefnum Seðlabanka Íslands en þá var starfrækt bankaeftirlit og vátryggingaeftirlit innan Seðlabankans. Ritgerðin er skrifuð út frá sjónarhóli starfsmanns Fjármálaeftirlitsins og leitast við að svara rannsóknarspurningunni frá sjónarhóli Fjármálaeftirlitsins.
    Þrjú mismunandi líkön af skipulagi fjármálaeftirlits í Evrópu voru skoðuð og einnig var skoðað hvernig fyrirkomulag á fjármálaeftirliti er í öðrum löndum og þá aðallega í Evrópu.

Samþykkt: 
  • 27.8.2010
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/6083


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
BS_ritgerd_vor_2010_HalldoraJohannsdottir.pdf1.23 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna