Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/610
Ritgerð þessi er lokaverkefni við kennaradeild Háskólans á Akureyri. Í henni er reynt
að varpa ljósi á þau atriði er mestu skipta hvað varðar umræðu um bráðgera
nemendur.
Í fræðilegum kafla ritgerðarinnar er fjallað um þær hugmyndir og
skilgreiningar sem tengjast umfjöllun um bráðgera nemendur. Velt er upp atriðum
eins og hvað felst í því að vera bráðger og hvernig hugmyndir um það hafa þróast í
gegnum tíðina. Með aukinni þekkingu í sálfræði og fyrir tilstuðlan ýmissa rannsókna
hafa skilgreiningar víkkað og mun stærri hópur barna getur verið skilgreindur sem
bráðger.
Einnig er fjallað örlítið um atriði er varða kennslu þessara nemenda, hvað þarf
að hafa í huga og hvað ber að varast. Bráðgerir nemendur sýna frávik í þroska, það
þýðir að þeir eru töluvert ólíkir meginþorra jafnaldra sinna hvað varðar getu á að
minnsta kosti einu sviði. Frá því að skólar fóru að starfa sem stofnanir þá hefur
bekkjarkerfi verið við lýði þar sem lengst af var miðað við getu og þarfir
meðalnemandans. Frávikin, getulitlir jafnt sem getumiklir nemendur hafa því að
miklu leyti verið afskiptir í hinu hefðbundna skólakerfi. Aukin einstaklingsmiðun í
kennslu og gerð einstaklingsnámskráa eru talin ein helstu úrræði sem komið gæti
þessum hópi nemenda til góða, jafnt sem öllum nemendum.
Einnig var gerð rannsókn á viðhorfum kennara á yngsta stigi í grunnskólum á
Akureyri. Var hún framkvæmd til að reyna varpa frekara ljósi á stöðu ungra bráðgerra
barna í grunnskólanum. Kannað er hvaða viðhorf kennarar hafa til kennslu þessara
nemenda og eigin þekkingar á þeim einkennum og þörfum sem þessi hópur nemenda
hefur. Í seinni hluta ritgerðarinnar er rannsókninni lýst og þeim aðferðum sem við
hana var beitt. Niðurstöður kynntar og gerð samantekt á þeim. Einnig er fjallað um
hvaða ályktanir má draga út frá niðurstöðunum og hvaða úrbætur má gera í ljósi
þeirra.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Bradgerirnemendur.pdf | 385.37 kB | Opinn | Bráðgerir nemendur - heild | Skoða/Opna |