is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Akureyri > Hug- og félagsvísindasvið > B.A./B.Ed. verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/614

Titill: 
  • Fámennir skólar og foreldrasamstarf
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Ritgerð þessi er lokaverkefni til B.Ed. – prófs við kennaradeild Háskólans á Akureyri.
    Hún fjallar um fámenna skóla og foreldrasamstarf, en þar er leitað svara við þeirri
    spurningu hversu heppilegar smærri einingar skóla eru og hvernig foreldrasamstarf
    spilar þar inn í. Stuðst er við hvernig slíkir skólar vinna út frá Aðalnámskrá
    Grunnskóla til að koma í kring þeim vinnuáætlunum sem ætlast er til af þeim.
    Fámennir grunnskólar eru staðreynd og þess vegna er mikilvægt að þeir geti
    blómstrað og rækt skyldur sínar sem best við nemendur og foreldra
    Þessir skólar reynast frekar dýrir í rekstri sökum smæðar sinnar og eru því oft
    stærsti kostnaðarliður lítilla sveitarfélaga. Þar af leiðandi er reynt að fækka
    rekstrareiningum í þeirri von að hagræðing náist fram. Því þarf að sýna fram á gildi
    þessara skóla í samfélaginu, þar sem þeir eru oftast einnig í hlutverki félagsmiðstöðva
    eða samkomustaða á viðkomandi svæðum. Því er það brýnna nú en oft áður að finna
    farsæla lausn á málefnum fámennra skóla.

Samþykkt: 
  • 1.1.2007
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/614


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Lokaverkefni.pdf303.89 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna