is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > Meistaraprófsritgerðir - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/6209

Titill: 
  • Daglegt líf fatlaðra barna: Fjölskylda, skóli og frístundir
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Rannsóknin Daglegt líf fatlaðra barna: Fjölskylda, skóli og frístundir hefur það markmið að afla þekkingar á daglegu lífi fatlaðra barna og fá fram sjónarhorn þeirra á líf sitt og aðstæður. Sjónum var meðal annars beint að þáttum sem stuðluðu að eða hindruðu samfélagsþátttöku barnanna. Í rannsókninni var beitt aðferðum eigindlegrar rannsóknarhefðar. Notuð voru hálfopin viðtöl og þátttökuathuganir. Þátttakendur voru tíu fötluð börn á aldrinum 10–15 ára og foreldrar þeirra auk nokkurra fagaðila sem starfa að málefnum fatlaðra barna. Tekin voru viðtöl við börnin og foreldra þeirra og þátttökuathuganir gerðar í skólum og tómstundaúrræðum þar sem börnin dvöldu. Beitt var markvissu úrtaki og börnin í rannsókninni voru með ólíkar skerðingar og bjuggu við margvíslegar aðstæður. Þau ættu því að endurspegla fjölbreytileika fatlaðra barna í samfélaginu. Niðurstöður sýndu að þættir sem stuðluðu að almennri samfélagsþátttöku barnanna voru: Skólaganga í almennum skóla, ófatlaðir vinir, rétt hjálpartæki, gott aðgengi, liðsmenn til að vera með í frítíma og að vera ekki í sérúrræðum. Þeir þættir sem einkum hindruðu samfélagsþátttöku barnanna voru: Að vera í sérskóla og sérúrræðum í tómstundum, skortur á tómstundaúrræðum og aðstoðarfólki til hafa með í frístundum og slæmt aðgengi. Rannsókninni er ætlað að vera framlag til aukins skilnings á barnæsku og fötlun. Hagnýtt gildi hennar felst í því að varpa ljósi á þætti sem stuðla að aukinni samfélagsþátttöku fatlaðra barna og að benda á það sem betur má gera í skipulagi og framkvæmd þjónustu við fötluð börn á Íslandi þannig að þau geti verið þátttakendur í daglegu lífi á borð við önnur börn.

  • Útdráttur er á ensku

    The research Disabled children‘s everyday lives: Family, school and leisure is my master’s thesis in Disability Studies at the University of Iceland. The purpose of the study is to gain knowledge of disabled children’s daily lives from their own perspective. A specific focus was on identifying issues that facilitated or hindered children’s participation in regular community activities. The study is based on qualitative methods and data was collected through semi structured interviews and participant observation. The key participants were ten disabled children 10 to 15 years old and their parents as well as a few professionals who worked with the children. The children and their parents were interviewed and participant observation were conducted in schools and children’s leisure programs. Participants were selected through purposeful sampling in order to create a sample of that reflected a broad spectrum of impairments and living conditions among disabled children. The findings show that the major barriers to full social participation were being in segregated school and leisure program, lack of leisure programs, lack of support staff during free time such as recess at school, and inaccessibility. What facilitated the children’s social participation and inclusion in regular community life was going to regular schools, having non-disabled friends, having appropriate technical aid, good accessibility, having support staff during recess and not been in segregated programs. The study will hopefully add to the current knowledge of childhood disability and disabled children’s everyday lives. The findings should also be helpful in identifying issues that can facilitate social participation of disabled children and points to where policy and practice can be improved in order to make sure disabled children can be included in all aspects of community life.

Samþykkt: 
  • 11.9.2010
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/6209


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
ritgerð-Helga3.pdf340.82 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna