Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/622
Ritgerð þessi er lokaverkefni til B.Ed. gráðu við leikskólabraut Kennaraháskóla Íslands, vormisserið 2007. Í ritgerðinni er fjallað um myndsköpun barna og hvernig megi túlka viðfangsefni með myndrænum hætti. Mikilvægi myndsköpunar sem náms- og þroskaleið er ómælanleg en mikilvæg vídd. Huga þarf að auknu gildi þess í margbrotnu samfélagi á tímum hraða og tímaskorts að hlú að frjórri og skapandi hugsun þannig að sköpunarhæfileikar einstaklingsins fái að njóta sín á uppbyggilegan og þroskandi máta án íhlutunar. Myndsköpun hefur ómetanlegt gildi sem mikilvægur tjáningarmiðill og er öflugur þroskagjafi í sálarlífi ungra barna.
Komið er inn á kenningar í uppeldis- og menntunarfræðum sem hafa mikil áhrif á skólastarf. Fjölgreindarkenning Gardners byggir á margvíslegum athugunum hans á einstaklingum með ólíkan bakgrunn og getu ásamt samanburði á fólki frá ólíkum menningarheimum. Kenningin samanstendur af átta eða fleirum jafngildum greindarsviðum sem þroskast á mismunandi hátt og á misjöfnum tíma hjá hverjum einstaklingi, farið er í gegnum mikilvægi hverrar greindar fyrir sig og gildi þess að örva greindirnar.
Einnig er fjallað um kenningar Rhodu Kellogg. En rannsóknir hennar byggjast á geysistóru úrtaki teikninga barna þar sem hún flokkar þær eftir mynstri, staðsetningu þess, formi, en leitar ekki raunsæis í myndunum.
Aðal markmið ritgerðarinnar er að sýna fram á hvernig hægt er að örva þessar átta mismunandi greindir með myndsköpun í leikskólastarfinu. Dregin er upp mynd af því hvernig auðga má reynsluheim barna og örva þau með mismunandi hætti til þess að tjá upplifanir sínar í myndsköpun.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Myndsköpun barna -Frumleiki í hugsun og verki.pdf | 770.37 kB | Opinn | Skoða/Opna |