Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/6302
Umfjöllunarefni þessarar ritgerðar er skattlagning sambúðarfólks og einstaklinga með börn. Leitast er svara við því hvernig íslenskum stjórnvöldum hefur tekist að hlúa að fjölskyldufólki hér á landi. Farið verður yfir lög um tekjuskatt nr. 90/2003 og hvernig skattlagningu einstaklinga og sambúðarfólks er háttað samkvæmt þeim. Tilgangur ritgerðarinnar er að skoða hvort hagstæðara sé fyrir fólk sem býr saman að skrá sig í sambúð eða ekki, tekjulega séð. Byrjað verður á að fjalla um óvígða sambúð og hvernig þróunin hefur verið í þeim málum, fjallað verður um tekjuskattslögin og bótahlutann sem felur í sér barna- og vaxtabætur. Farið verður yfir þær reglur sem gilda um óvígða sambúð, ákvæði tekjuskattslaga um samsköttun og fjallað verður um fjármál heimila og skoðaðar þær reglur sem gilda þar um eignir og skuldir við slit á óvígðri sambúð. Að lokum verður farið yfir erfðir og dánarbú og þær reglur sem gilda um skattlagningu á því ári sem til sambúðar stofnast og á því ári sem henni er slitið.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Katrín Sigrún Tómasdóttir.pdf | 339.17 kB | Lokaður | Heildartexti |