is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Heilbrigðisvísindasvið > B.S. verkefni - Heilbrigðisvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/6336

Titill: 
  • Aðferðir og hugmyndafræði AA-stefnunnar. Þróun og forprófun á AA-matskvarða
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • AA-samtökin eru úrræðið sem mælt er með eftir áfengismeðferð. Hugmyndafræði AA-samtakanna kemur fram í 12 reynslusporum sem lýst er í AA-bókinni. Inntak þeirra er um margt líkt árveknimiðaðri huglægri meðferð. Þörf er á að þróa heildstæðan spurningalista sem metur hvort þátttakendur hafa tileinkað sér inntak sporanna. Þá fyrst er raunverulega hægt að meta gagnsemi AA-samtakanna. Markmið þessarar rannsóknar er að fyrir liggi drög að spurningalista sem metur hversu vel þátttakendur hafa tileinkað sér aðferðir og hugmyndafræði AA-samtakanna. Með þessu verkefni eru tekin fyrstu skrefin í þróun slíks lista. Hugmyndafræðin var greind í átta þætti og saminn 99 atriða spurningalisti sem náði til allra þáttanna. Listinn var lagður fyrir 20 þátttakendur. Lagt var til að sleppa níu spurningum úr listanum, breyta valmöguleikum og umorða 29 spurningar á grundvelli niðurstaðna. Næsta skref í þróun AA-matslistans er að forprófa breyttar spurningar, leggja listann fyrir margfalt stærra úrtak og fækka spurningum á grundvelli þáttagreiningar.

Samþykkt: 
  • 27.9.2010
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/6336


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Helga Jenný.pdf495.54 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna