is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Hugvísindasvið > B.A. verkefni - Hugvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/6345

Titill: 
  • Rússneska hagkerfið 1970-2010. „Hverjum er um að kenna?“ „Hvað ber að gera?“
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Oft er sagt að raunveruleikinn sé ótrúlegri en skáldskapur. Þetta orðatiltæki á vel við þegar rússneskur efnahagur síðustu 40 ára er skoðaður. Á þessum 40 árum hafa gríðarlegar breytingar átt sér stað. Gallharður kommúnískur áætlunarbúskapur með fimm ára áætlunum var við dauðans dyr um miðjan níunda áratuginn. Reynt var að koma á markaðsumbótum sem leiddu til hruns heimsveldis. Við tók áratugur niðurlægingar, síðar í upphafi aldarinnar tók við nokkurs konar endurreisn sem margar rannsóknir benda til að sé ekki sjálfbær. Reynt verður að varpa ljósi á helstu ákvarðanir ráðamanna sem leiddu til þessarar ferðar sem enn sér ekki fyrir endann á. Rannsóknir hafa sýnt að athafnaleysi Leoníd Brézhnevs hafi átt sinn þátt í falli Sovétríkjanna og að endurskipulagningaaðgerðir Mikhaíl Gorbatsjovs hafi verið a.m.k. tíu árum of seint á ferð til að skila tilætluðum árangri. Einnig verða tekin dæmi um hvernig aðgerðir Boris Jeltsíns ollu nánast algjöru hruni rússnesks efnahags á tíunda áratug síðustu aldar og hvernig Vladímir Pútín og síðar Dmítrí Medvédev hafa reynt að rétta af efnahaginn. Síðar í ritgerðinni verður rætt við m.a. við rússneska viðskipta- og hagfræðinga um ástand efnahagsins. Í ljós kemur við lestur þess kafla að oft er langt á milli orðræðu leiðtoganna og raunveruleika venjulegs fólks sem þarf að glíma við fjölda vandamála frá degi til dags í sinni vinnu.

Samþykkt: 
  • 29.9.2010
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/6345


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Lokaritgerð Karl F. Thorarensen.pdf591.44 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna