Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/6379
Í greinargerðinni er fjallað um verkefnið Brúum bilið og markmið þess. Einnig er litið á þroska fimm til sjö ára barna og hverjar helstu þroskabreytingar hjá þessum aldurshópi eru. Þá er farið yfir sögulega þróun samvinnu leik- og grunnskóla í gegnum árin. Tekið var viðtal við Ástu Egilsdóttur leik- og grunnskólakennara, sem hefur unnið með verkefnið alveg frá árinu 1995 þegar Menntamálaráðuneytið tók þátt í samnorrænu verkefni með áherslu á leik- og grunnskóla. Kannað var hvaða sýn hún hefur á verkefnið Brúum bilið. Jafnframt er farið yfir tengsl skólastiganna og hvernig leikskólinn Krókur í Grindavík hefur unnið með fyrrgreint verkefni. Greinargerðinni fylgir hefti með kennsluhugmyndum fyrir gunnskólakennara sem taka á móti skólahópa leikskóla. Viðfangsefnin eru fjölbreytt og í samræmi við þroska og aldur barnanna og leitast er við að hafa leikinn í forgangi. Meðfylgjandi er einnig bæklingur fyrir foreldra barna í skólahóp leikskólans, þar sem skólahópur og markmið hans eru kynnt.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Jóna Rut Greinargerð loka.pdf | 271.04 kB | Opinn | Greinargerð | Skoða/Opna | |
Jóna Rut Ritgerð JS Loka.pdf | 5.23 MB | Opinn | Brúin | Skoða/Opna | |
Upplýsingabæklingur fyrir foreldra barna í skólahóp.pdf | 530.37 kB | Opinn | Fylgiskjöl | Skoða/Opna |