is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskóli Íslands > Hugvísindasvið > Meistaraprófsritgerðir - Hugvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/6380

Titill: 
  • Myndirnar tala. Myndabækur fyrir börn
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Myndabækur hafa notið vaxandi athygli fræðimanna um barnabókmenntir. Ritgerð þessi afmarkar myndabækur sem bókmenntagrein í fyrsta kafla og lýsir áhrifum mynda á börn í ljósi kenninga sálfræðinga, einkum Rudolfs Arnheim og Howard Gardner. Fjallað er um aðdráttarafl mynda á börn og rannsóknir fræðimanna á listum og litaskynjun, allt frá Isaac Newton og Johann Wolfgang von Goethe til Perry Nodelman. Þessi kafli skýrir einnig tvö meginsamskiptaform myndabókanna, hið sjónræna og hið munnlega, í ljósi táknfræðinnar. Í öðrum kafla er gefið yfirlit yfir helstu myndabækur vestrænna landa og helstu íslensku myndabækurnar. Þriðji kaflinn einbeitir sér að myndrænum kóðum og útskýrir hvernig lesa má myndir eins og texta. Fjórði kaflinn segir frá formgerðarflokkun myndabóka, mismunandi nálgun og kenningum fræðimanna síðustu þrjátíu ár. Þar er einkum höfð hliðsjón af nýjustu bók barnabókmenntafræðinganna Mariu Nikolajevu og Carole Scott sem draga saman fyrri kenningar og umfjöllun um myndabækur fyrir börn. Lokakafli ritgerðarinnar beitir síðan kenningunum sem gerð hefur verið grein fyrir til að greina myndabókina Gælur, fælur og þvælur eftir Þórarin Eldjárn og Sigrúnu Eldjárn frá árinu 2007. Kannarnir og kenningar þær sem hér er fjallað um auðvelda okkur að greina myndabækur og skilja gerð þeirra og áhrif á lesendur en hvort tveggja getur hjálpað okkur að velja réttar bækur handa börnum okkar.

Samþykkt: 
  • 6.10.2010
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/6380


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Myndirnar_Jarka_Lokagerd-small.pdf3.35 MBLokaðurHeildartextiPDF