is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Menntavísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Menntavísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/6425

Titill: 
  • Brúarland : skóli og samfélag á stríðstímum
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Verkefni þetta er greinaflokkur um elsta skólahúsnæði Mosfellsbæjar, Brúarland, ásamt greinargerð. Í greinunum er fjallað um sögu Brúarlands, byggingu þess og nýtingu í gegnum tíðina og hernámið 1940. Markmiðið með verkefninu er að gefa lesendum hugmynd um það samfélag sem var á Brúarlandi og menninguna sem þar ríkti. Á Brúarlandi var skóli, heimavist, pósthús, símstöð og samkomuhús sveitarinnar, Brúarland var í raun miðpunktur Mosfellshrepps. Skólastjórahjónin, Lárus B. Halldórsson og Kristín Magnúsdóttir, eru í aðalhlutverki ásamt fjölskyldu þeirra. Reynt er að varpa ljósi á áhrif hersins sem kom sér fyrir á Brúarlandi og þá fær Winston Churchill talsvert pláss vegna heimsóknar sinnar í Mosfellssveit í ágúst 1941. Vangaveltur um framtíð hússins eru tíundaðar um leið og fjallað er um framhaldsskólann sem nú nýtir húsnæðið.

Samþykkt: 
  • 11.10.2010
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/6425


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
bruarland_thrainn_a_baldvinsson.pdf257.39 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna