Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/6427
Viðfangsefni þessa lokaverkefnis við Menntavísindasvið Háskóla Íslands, vorönn 2010, er barnabókin Búi og Brá fara á stjá. Markmiðið með henni er að hún nýtist í kennslu og opni leið að fjölbreyttari kennsluaðferðum og samþættingu námsgreina. Bókin er helst ætluð lesendum á yngsta stigi grunnskóla. Sagan segir frá tveimur tröllabörnum og þeirra ævintýrum. Hún er ríkulega myndskreytt þar sem íslensk náttúra fær að njóta sín.
Í eftirfarandi greinargerð er farið yfir sögu barnabókmennta á Íslandi og uppbyggingu þeirra. Fjallað er um þróun myndskreyttra barnabóka hér á landi, tengingu bókarinnar við kennslu, samþættingu námsgreina og þemanám. Í viðauka má finna hugmyndasjóð að ýmsum verkefnum sem hægt er að vinna samhliða bókinni.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Klara og Kristrún - greinargerð (PDF).pdf | 862.64 kB | Opinn | Greinargerð | Skoða/Opna | |
Búi og Brá fara á stjá, PDF. skjal til prentunar.pdf | 1.64 MB | Opinn | Barnabók | Skoða/Opna |