is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Menntavísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Menntavísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/6440

Titill: 
  • Gagnvirkar töflur í stærðfræðinámi og -kennslu : nokkrar vörður
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Í þessari ritgerð er umfjöllunarefnið gagnvirkar kennslutöflur í stærðfræðinámi og –kennslu en þær hafa verið að ryðja sér til rúms í skólastarfi um víða veröld. Nokkrar rannsóknir á notkun taflnanna verða reifaðar og sýna þær fram á að þegar kemur að innleiðingu þeirra í skólastarf þá sé að ýmsu að hyggja. Mikilvægt er að vandað sé til verka ella er jafnvel hætt við skaðlegum áhrifum á nám nemenda.
    Fjallað er um hugsmíðihyggju og áhrif hennar á námskrár og námsefni, upplýsingatækni í stærðfræðinámi og þær breytingar sem orðið hafa á stærðfræðinámi og –kennslu. Ýmis sjónarhorn hugsmíðihyggjunnar eru reifuð og skoðað hvernig þær hugmyndir geta komið að gagni til þess að skapa nemendum árangursríkt námsumhverfi. Sköpun og sköpunargáfa í stærðfræði er einnig til umfjöllunar og pælt í því hvernig kennsla studd gagnvirkum töflum geti ýtt undir hana. Einnig fylgja nokkrar gagnlegar vefslóðir sem geta nýst öllum kennurum, hvort sem kennsla þeirra er studd gagnvirkri töflu eður ei.

Samþykkt: 
  • 11.10.2010
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/6440


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Gagnvirkar_toflur_staerdfraedi.pdf461.84 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna