Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/6445
Eftirfarandi verkefni er lokaverkefni til B.Ed.-prófs á grunnskólakennarabraut við Háskóla Íslands. Það fjallar um af hverju og hvernig smíðakennarar geta nýtt skóginn til skapandi starfa í smíðakennslu þar sem áherslur sjálfbærrar þróunar eru hafðar að leiðarljósi. Í því sambandi er rakin saga skógræktar á Íslandi, en með tilkomu hennar sköpuðust aðstæður hér á landi sem kallað hafa á nýja menningu og ný tækifæri sem hægt er að nýta á fjölbreyttan hátt. Í verkefninu eru kynntar helstu trjátegundir sem ræktaðar hafa verið með tilliti til þess í hvernig verkefni viður þeirra er nýtanlegur. Vistkerfi skógarins er skoðað og fjallað um áherslu á sjálfbæra þróun í alþjóða samþykktum sem Íslendingar hafa unnið eftir og stuðst er við í stefnumótun í skógrækt, stjórnsýslunni og menntakerfinu. Þær áherslur koma fram í lögum og markmiðum um grunnskóla og markmiðum í aðalnámskrá í hönnun og smíði. Einnig er fjallað um hvernig skólar hafa verðið að nýta skóginn til kennslu og þróunarverkefnið Lesið í skóginn með skólum. Það varð kveikja að vinnu tveggja smíðakennara sem rætt er við og eru þeir að nýta skógarafurðir í smíðakennslu. Að lokum er fjallað um með hvaða hætti viðarvinnsla úr íslenskum skógum er háttað í dag.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Skógurinn sem uppspretta skapandi verkefna í smíðakennslu.pdf | 872.62 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |