Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/6454
Þessi greinargerð fylgir með lokaverkefni mínu til B.Ed.- prófs við Háskóla Íslands í júní 2010. Verkefnið er námsspil sem er ætlað eldri bekkjum grunnskóla, alveg niður í 6. bekk. Spilið gengur út á að finna örnefni á Suðurlandi, annaðhvort út frá beinum spurningum eða vísbendingaspurningum. Það inniheldur um 250 spurningaspjöld, spilaborð, 1 tening og spilareglur. Í greinargerðinni er farið í gegnum spil sem kennsluaðferð, gagnsemi þeirra í kennslu og grenndarkennslu í grunnskólum. Tilgangur spilsins er að efla grenndarvitund nemenda og áhuga þeirra á því sem er í næsta nágrenni við þau.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Suðurland_greinargerð.pdf | 153.06 kB | Opinn | Greinargerð | Skoða/Opna | |
Suðurland_viðauki.pdf | 367.75 kB | Opinn | Viðauki - spurningar og spilareglur | Skoða/Opna | |
Sudurland_myndir_af_spili.pdf | 348.03 kB | Opinn | Myndir | Skoða/Opna |