is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Menntavísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Menntavísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/6456

Titill: 
  • Íslenska er leikur einn : handbók um íslenskukennslu á yngsta stigi með aðferðum leikrænnar tjáningar
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Sem lokaverkefni ákvað höfundur að búa til kennarahandbók með leiðum til að kenna íslensku á yngsta stigi með aðferðum leikrænnar tjáningar. Með handbókinni fylgir fræðileg greinargerð sem styður við kennarahandbókina.
    Í handbókinni Íslenska er leikur einn eru æfingar sem höfundur hefur safnað, útfært og tengt markmiðum aðalnámskrár grunnskóla um íslenskukennslu. Æfingarnar eru útfærðar á mismunandi hátt eftir aldri nemenda og tilgreindir eru þættir sem þær vinna með samhliða íslenskunámi. Jafnframt eru þær aðferðir leikrænnar tjáningar sem notaðar eru í bókinni útskýrðar. Einnig er kafli um námsmat sem hægt er að nýta þegar meta á árangur nemenda í íslenskunámi.
    Í greinargerðinni eru kynntar hugmyndir nokkurra erlendra brautryðjenda í notkun leikrænnar tjáningar og drepið á rannsóknir á leiklist í skólastarfi Einnig er fjallað um þau markmið aðalnámskrár í íslensku sem unnið er eftir í handbókinni og gerð grein fyrir hlutverki leikrænnar tjáningar samkvæmt aðalnámskrá grunnskóla. Að lokum eru færð rök fyrir ávinningi nemenda og kennara af notkun leiklistar í skólastarfi.

Samþykkt: 
  • 12.10.2010
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/6456


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Greinargerd_islenska_er_leikur_einn_iam.pdf268.69 kBOpinnGreinargerðPDFSkoða/Opna
Handbok_islenska_er_leikur_einn_iam.pdf348.61 kBOpinnKennarahandbók PDFSkoða/Opna