is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Menntavísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Menntavísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/6480

Titill: 
  • Einingakubbaleikur í leikskólum sem starfa eftir ólíkum stefnum
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Viðfangsefni þessa verkefnis var að skoða einingakubbaleik barna á leikskólum sem starfa eftir mismunandi hugmyndafræði. Eftirfarandi rannsóknarspurning var höfð að leiðarljósi við alla vinnu rannsóknarinnar: Á hvaða hátt hafa barnahópurinn, hlutverk kennara og umhverfið áhrif á leik barna með einingakubba í leikskólum sem starfa eftir Hjallastefnunni annars vegar og hugmyndafræði Reggio Emilia hins vegar? Tilgáta okkar að svari er: Við teljum að umhverfið hafi síður truflandi áhrif í skólum sem starfa eftir Hjallastefnunni en þeim sem starfa eftir hugmyndafræði Reggio Emilia. Einnig að kennarinn styðji betur við leik barna í Reggio Emilia skólum en að barnahópurinn hafi sömu áhrif á leikinn í báðum stefnum.
    Við öflun sem og úrvinnslu gagna voru notaðar eigindlegar rannsóknaraðferðir, nánar tiltekið vettvangsathuganir sem teknar voru upp á myndband. Við val á leikskólum var stuðst við hentugleikaúrtak.
    Niðurstöður okkar eru þær að barnahópurinn styður við leikinn og að umhverfið hefur síður truflandi áhrif í leikskólum Hjallastefnunnar en í leikskólum sem starfa eftir aðferðum Reggio Emilia líkt og tilgáta okkar lagði til. Aftur á móti styður kennarinn ekki eins mikið við leikinn og við áttum von á í þeim skóla sem starfar eftir hugmyndafræði Reggio Emilia.

Samþykkt: 
  • 13.10.2010
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/6480


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Einingakubbaleikur_i_leikskolum_sem_starfa_eftir_olikum_stefnum.pdf13.7 MBLokaðurHeildartextiPDF