is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Menntavísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Menntavísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/6486

Titill: 
  • Það læra börn sem fyrir þeim er haft : mikilvægi málörvunar og kennslugögn
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Eftirfarandi verkefni er lokaverkefni til B.Ed gráðu í leikskólakennarafræði við Menntavísindasvið Háskóla Íslands vorið 2010. Í fyrri hluta verkefnisins kynntum við hugmyndir og kenningar nokkurra fræðimanna um máltöku barna ásamt því að skoða hvaða áhrif nærumhverfið hefur á þroskaferil barnsins. Skoðuðum hvernig máltökuferli þróast hjá börnum, gerðum grein fyrir stigum máltökunnar og hversu mikilvægur börnum góður orðaforði er. Málið er okkar mikilvægasta tæki til samskipta og því er mikilvægt að börn nái góðum tökum á því. Við settum fram hugmyndir um það hvernig málfyrirmyndir (foreldrar, leikskólakennarar) geta stuðlað að auknum orðaforða og betri málvitund barna. Lögðum upp með spurninguna: Er málörvun nauðsynleg til að efla málþroska ungra barna? Og leituðumst við að svara henni. Í síðari hluta verkefnisins gerðum við tillögur að 10 málörvunarstundum fyrir elstu börn leikskólans (með áherslu á íslensku húsdýrin) sem allar höfðu það markmið að efla orðaforða og hljóðkerfisvitund, auk þess að þjálfa færni barna í frásögn og hlustun því góður orðaforði og sterk hljóðkerfisvitund er undirstaða farsæls lestrarnáms síðar meir. Einnig fylgja verkefninu okkar kennslugögn sem við útbjuggum, annars vegar orðaforðaspil um íslensku húsdýrin og hins vegar rímspil. Lykilorð: Málörvun, orðaforði, hljóðkerfisvitund, hlustun og frásögn.

Samþykkt: 
  • 13.10.2010
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/6486


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Það læra börn sem fyrir þeim er haft Lokaverkefni 2010.pdf1.81 MBLokaðurHeildartextiPDF