Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/6545
Vinir standa saman er lestrarbók sem hefur það að markmiði að vekja lestraráhuga
og efla lesskilning og orðaforða nemenda. Bókin er byggð á stuttum, sjálfstæðum
köflum sem allir tengjast í einn söguþráð. Bókin er skreytt fallegum myndum sem tjá
ákveðna merkingu og styðja við efni hennar. Myndirnar hafa þann tilgang að hjálpa
nemendum að ná betri skilningi, dýpt og meiri ánægju af lestrinum. Í lok hvers kafla er opna með fjölbreyttum lesskilningsverkefnum, ásamt leiðbeinandi fyrirmælum um úrvinnslu. Lestrarbókin er hugsuð með yngstu nemendur grunnskólans í huga. Hún getur bæði nýst sem lesefni í skólastarfi og heima.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Greinargerd_Vinir_standa_saman.pdf | 423.89 kB | Opinn | Greinargerð | Skoða/Opna | |
Lestrarbok_Vinir_standa_saman.pdf | 8.35 MB | Opinn | Lestrarbók | Skoða/Opna |