Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/6557
Í þessari ritgerð er fjallað um athyglisbrest með ofvirkni og notast er við skammstöfunina ADHD sem er viðurkennd stytting á röskuninni. Skammstöfunin stendur fyrir enska heitið Attention Deficit Hyperactivity Disorder.
Helstu einkennum og fylgiröskunum ADHD er lýst. Rannsóknir hafa sýnt fram á að ADHD er taugafræðileg röskun, auk þess að vera að einhverju leyti erfðafræðileg. Hjá börnum með ADHD veldur þessi röskun ýmsum vandamálum í skólakerfinu og skólastarfi. Meðferðarúrræði eru skoðuð og fjöllum við um þessa þætti með hliðsjón af skólastarfi. Nokkur umfjöllun er einnig um umbunarkerfi.
Stutt söguágrip af skólasögu er í þriðja kafla ritgerðarinnar og er áhugavert að skoða þróun skólamála fyrir börn með námsörðugleika. Ýmsar leiðir eru færar fyrir kennara og þá sem standa barninu næst. Skoðaðar eru leiðir í skólastarfi sem ættu að nýtast kennaranum. Miklu máli skiptir að kennarinn beri hag nemanda síns fyrir brjósti. Til þess þarf hann að huga eigin viðhorfum.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
ADHD-einkenni_og_skolastarf.pdf | 846.45 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |