Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/655
Í verkefni þessu er fjallað um hvernig megi nota grenndarkennslu í leikskólanum
Brekkubæ til að styrkja sjálfsvitund barnanna. Gerð er grein fyrir hvað í grenndarfræði
felst og þeirri hugmyndafræði að hún sé nýtt til að efla og styrkja sjálfsvitund nemenda.
Fjallað er um þrjár hornstoðir sjálfsvitundar, söguvitund, grenndarvitund og
umhverfisvitund og samspili þeirra. Þá er einnig skoðað hvernig hugtök
grenndarfræðinnar og grenndarkennsla rúmast innan markmiða Aðalnámskrár leikskóla.
Gerð er grein fyrir hugmyndum nokkurra fræðimanna um nám og kennslu, þeirra
Howard Gardner, John Dewey, Lev S. Vygotsky og Loris Malaguzzi og hvernig
kenningar þeirra falla að hugmyndum grenndarfræðinnar. Allir leggja þeir áherslu á
mikilvægi umhverfisins í námi barna og að börn komist í snertingu við náttúruna og
nánasta umhverfi sitt. Það er á ábyrgð kennarans að útbúa umhverfið og námsefnið sem
hæfir börnum og skemmtilegt að flétta hugmyndir þessara kennimanna saman þar sem
það fellur vel að leikskólastarfi.
Í verkefninu er greint frá leikskólanum Brekkubæ á Vopnafirði og aðstæðum hans
lýst að innan sem utan með tilliti til grenndarkennslu og hvernig fella má fjölbreytta
möguleika að einstökum námssviðum Aðalnámskrár leikskóla. Að lokum eru kynntar
hugmyndir að einstökum verkefnum fyrir leikskólabörn í grenndarkennslu sem tengjast
heimabyggðinni og varðar sögu, menningu og umhverfi. Verkefnin eru ólík og snerta
námssviðin sex er tilgreind eru í Aðalnámskrá leikskóla. Verkefnin eru mislöng og einfalt
að heimfæra þau yfir á aðrar þjóðsögur, örnefni eða heimabyggð og ættu verkefnin því að
geta komið fleirum leikskólakennurum að notum.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
efnisyfirlit.pdf | 5.37 kB | Opinn | Ungur nemur - efnisyfirlit | Skoða/Opna | |
heimildarskrá.pdf | 14.09 kB | Opinn | Ungur nemur - heimildaskrá | Skoða/Opna | |
Hvað ungur nemur gamall temur.pdf | 723.22 kB | Takmarkaður | Ungur nemur - heild | ||
útdráttur.pdf | 15.96 kB | Opinn | Ungur nemur - útdráttur | Skoða/Opna |